Hetjan mín
Þið vitið það kannski ekki en hún Lilja Ýr mín er alveg rosaleg hetja. Hún getur verið mjög feimin eins og kannski sumir vita. Síðan eins og allir vita þá byrjaði hún í nýjum skóla í september síðast liðnum. Eins og gefur að skilja þá er það ekkert auðvelt að skilja við öruggt umhverfi og vini í annað skiptið á tveimur árum og hefja lífið á nýjum stað með nýjum vinum.
En markmiðið með þessum pósti mínum er að segja frá hvað hún gerði á föstudaginn fyrir viku. Það var haldin hin árlega vorhátíð í skólanum hennar. Krakkarnir voru með söngskemmtun fyrir okkur foreldrana og kennarana. Þegar tónlistarkennarinn hennar var að undirbúa þessa skemmtun haldið þið að stelpan mín hafi ekki verið fengin til að syngja einsöng og mín var alveg til í það. Sem sagt á föstudeginum fyrir viku þá söng hún einsöng fyrir framan alla þessa krakka, foreldra þeirra og kennarana. Þetta var svo flott hjá henni og vel gert og ég var svo fegin að vera með sólgleraugun mín (þetta var úti) því ég táraðist svo mikið (ég veit ég er voða væmin :-) Það fyndna við þetta var að hún gerði þetta án þess að hika. Svo var fólk alltaf að koma til okkar og segja hvað hún gerði þetta flott og vel og þau voru mjög hissa því þau töldu hana alltaf vera þessa feimnu og frekar viðkvæmu stelpu.
Hún Lilja Ýr mín er algjör hetja, ekki hefði ég þorað þessu !!!
Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home