Úti á djamminu
Ég fór í stelpu partý hérna á föstudaginn með nokkrum amerískum vinkonum mínum. Það var borðað og drukkið og kjaftað fram eftir kvöldi, alveg meiriháttar. Þetta verður mánaðarlega hjá okkur og er nokkurs konar saumó nema með áfengi, góðum mat og einhverju þema hverju sinni. Þetta eru alveg rosalega hressar stelpur og skemmtilegar og gaman að komast út úr húsi og eyða kvöldinu á þennan hátt.
Rétt áður en Auður og co. komu fór ég með nokkrum þeirra út að borða og í leikhús. Ein þeirra bauð okkur á söngleikinn Hairspray og við buðum henni út að borða fyrir leikhúsið. Þetta var ferlega fyndinn söngleikur og rosalega skemmtilegt kvöld. Gummi er ekki mikið fyrir söngleikina svo það var gaman að komast út með stelpum sem kunnu að meta það :-) reyndar held ég að við höfum allar átt það sameiginlegt að mennirnir okkar voru ekki hrifnir af söngleikjum. Við vorum á því að endurtaka þetta mjög fljótlega.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home