Family Day
Á föstudaginn síðasta var sumarskemmtun í skólanum hennar Ýrar, Family Day. Svo ég ákvað að taka nokkrar vinkonur hennar með heim eftir skólann hennar að leika þangað til sumarskemmtunin byrjaði. Í heildina var ég með 6 stelpur hér að leika, það var rosa gaman hjá þeim en full mikið fyrir mig :-) Um fimmleytið komu svo foreldrar stelpnanna og Gummi og við löbbuðum öll saman upp í skólann þeirra. Þar voru leiktæki, andlitsmálning, hoppukastali ofl. og það var grillað og dansað, mjög skemmtilegt og gaman að hitta alla. Veðrið var líka alveg meiriháttar.
Hér til hliðar getið þið séð nokkrar myndir frá þessu og líka séð vagninn sem Elísabet prinsessa ferðaðist í á milli staða með bleika kúrekahattinn á höfðinu. Aðal málið hjá henni núna er að vera í fínum prinsessukjólum/pilsum, með fína hatta og fína skó. Allt MJÖG stelpulegt. Hún er líka með mjög ákveðna skoðun á því í hvað hún fer á hverjum degi. Mikil þolinmæðisvinna en líka ótrúlega fyndið.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home