Tuesday, May 16, 2006

"Kubbupest" og mæðradagurinn

Það var nú mikið fjör hjá okkur um helgina. Síðdegis á laugardeginum þá byrjaði Elísabet að fá í magann, magaverkjunum fylgdu svo nokkrar klósettferðir en ekki mikið kvein, þannig að við pældum ekki mikið í þessu. Um miðja nóttina byrjar hún svo að gubba. Hún hefur aldrei fengið gubbupest áður svo hún var mjög hissa. Þetta gerðist svo fjórum sinnum um nóttina, greyið litla. Í eitt skiptið eftir að hún var búin að vera að gubba þá hnerrar hún hressilega og segir svo við mig "I (þýðir ég) var ekki að kubba", hún sem sagt hélt alltaf að við værum að segja kubba í staðinn fyrir gubba. Svo segir hún alltaf núna "I ekki kubba" og hristir hausinn í áhersluskyni.

Við Gummi fengum sem sagt ekki mikinn svefn þá um nóttina. Þegar ég kom svo fram um morguninn þá sá ég að Ýr var búin að merkja leiðina inn í eldhús fyrir mig þar sem beið mín rosa flott kort frá henni (sem hún bjó til sjálf) og myndarammi frá Elísabetu sem hún hafði búið til á leikskólanum handa mér. Ýr og Gummi voru líka búin að búa til rosa fínan morgunmat handa mér og kaupa blóm, alveg frábært. Ef þið vitið það nú ekki þegar þá var þetta í tilefni af mæðradeginum. Hann þykir MJÖG mikilvægur hér.

1 Comments:

Blogger herdist said...

Hæ hæ

En sæt saga með "kubbupestina" greyið litla, skildi ekkert i þessu.
En gaman að fá fréttir af ykkur.
Kveðja Herdís

1:42 AM  

Post a Comment

<< Home