Gestir og San Diego
Enn aftur langt á milli blogga hjá mér. Gestir komnir og farnir og nýjir komnir í staðinn. Begga, Kristján og strákarnir þeirra sætu voru hér hjá okkur í nokkra daga um miðjan maí. Það var smá sjoppað, sight-seeing og svo sjoppað aðeins meira, enda veðrið ekki upp á marga fiska flesta dagana þeirra hérna hjá okkur. Eftir 5 daga hér þá héldu þau áfram ferðalaginu sínu um Californiu þar sem þau ætluðu að keyra meðfram vestur ströndinni niður til San Diego þar sem við ætluðum að hitta þau tæplega viku seinna. Við eyddum svo nokkrum dögum með þeim í San Diego. Fórum m.a. með þeim í Legoland, Sea World og á ströndina. Við náðum líka að hitta Hildi og Felipe. Mjög skemmtileg ferð.
Þegar við svo komum aftur heim tóku við síðustu skóladagarnir hennar Ýrar og ég get alveg sagt það að það er mun meira að gera þá heldur en þegar skólinn er að byrja hjá henni. Alls konar eventar og uppákomur í skólanum, allir að kveðja alla og svo var sundlaugarpartý fyrir báða bekkina hjá einni stelpunni í hinum bekknum. Rosa fjör og gott veður, gaman að ná að hitta alla áður en sumarfríið skall á.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home