Auður systir og co.
Auður systir og fjölskylda eru búin að vera hjá okkur frá því 10. júní, nánar tiltekið Auður, Stebbi og börnin þeirra fjögur. Svo þið getið rétt ímyndað ykkur að það er búið að vera fjör á þessum bæ, sérstaklega þar sem húsið okkar er aðeins minna en íbúðin okkar á Hagamelnum. En þetta er búið að vera rosa gaman og mikið fjör hérna í húsinu. Við erum búin að fara á ströndina nokkrum sinnum, í Santa Cruz, í Monterey og í Carmel. Búin að keyra upp í fjöllin hérna og njóta þess að vera í garðinum hjá okkur og leika. Enda er veðrið búið að vera alveg meiriháttar. Það er búin að vera hitabylgja síðustu daga og við bókstaflega flúðum niður á strönd því þar var aðeins svalara. Svo á vísta bara að hitna hérna!!! Sem betur fer erum við með vaðlaugar hérna og mikið af sprinklerum og öðru vatnsdóti hérna í garðinum svo þetta verður allt í lagi. Síðan á veðrið að vera svo frábært í San Fran næstu daga að kannski flýjum við þangað þegar það er hvað heitast hérna eða bara aftur niður á strönd. Um næstu helgi erum við að fara í Disneyland og það er mikill spenningur í öllum, endum svo í San Diego.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home