SMORES
Ég hef alltaf verið þekkt fyrir að vera sælkeri svo það ætti ekkert að koma fólki á óvart að við fjölskyldan höfum uppgötvað SMORES. Það er hefð fyrir því að búa þetta til við varðelda hér í USA. Við erum sem sagt með lítið lurka-grill hér í garðinum hjá okkur og mér datt það snjallræði í hug að búa til smores. Það vakti líka svona svakalega lukku hjá dætrum mínum að þetta er algjör nauðsyn að gera í hvert skipti sem einhver kemur í grill til okkar og það er ekki svo sjaldan í góða veðrinu. Til að útskýra fyrir þeim sem ekki þekka smores, þá hitar maður eða grillar sykurpúða á teini þar til þeir eru orðnir linir. Þá eru þeir settir á milli tveggja kex platna ásamt súkkulaðibita. Hér er dæmi um smores-gerð.

1 Comments:
Nammi namm hljómar freistandi:-) fyrir sælkerann Herdísi.....
Nú erum við stórfjölskyldan að fara til Svíþjóðar eftir tvo daga og verðum þar í 2 vikur í stóru húsi rétt fyrir utan Stokkhólm. Tengdó fer með og litla systir Stulla ásamt bróður hans og konu. Þetta verður vonandi mjög gaman og notalegt, gott að komast í aðeins betra veður, komin með nóg af rigningu og roki.... vonum það besta. kveðja Herdís
Post a Comment
<< Home