Wednesday, July 05, 2006

Refur í garðinum okkar

Við fengum ref í heimsókn í garðinn okkar í dag. Ég sá e-ð læðast framhjá garðhurðinni okkar, hélt að það væri þvottabjörn (þeir eru sem sagt algengari sjón en refir hér). Ég kíkti varlega út um hurðina, því það er ekkert grín að lenda í hræddum þvottabirni, upplifði það í Massachusetts :-) Þarna stóð þá bara lítill refur, voða sætur, ég fékk meira að segja að smella mynd af honum og hann fékk að sniffa af ruslinu mínu í staðinn, svo hljóp hann í burtu. Hér er myndin af rebba.


Þetta minnir mig á það að daginn sem Auður og co. fóru aftur til Íslands þá tók ég Hafstein, Önnu og Ýr upp í fjöllin hérna hjá okkur til að finna dádýr. Oft þegar ég fer þangað til að taka myndir þá rekst ég á þau þar. Svo við ákváðum að freista gæfunnar. Við fórum fjögur á jeppanum okkar með engan topp á svo þetta var voða sport fyrir þau, ekki oft sem þau keyra um á blæju bíl með blæjuna niðri :-)
Haldið þið að við höfum ekki hitt á eina dádýrs fjölskylduna, mamman með börnin sín tvö. Krökkunum fannst þetta mjög merkilegt og gaman.

Kv. Edda.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home