Sunday, July 23, 2006

Hitabilun

Nú hafa veðurguðirnir alveg spilað út hjá okkur. Í dag voru hvorki meira né minna en 43°C og sól. Sem betur fer ákváðum við að forða okkur héðan úr bænum og fara niður á strönd í Carmel. Þar var reyndar óvenju heitt og ferlega mikið af fólki, en það var gott að geta aðeins kælt sig í sjónum. Í gær var um 40°C svo við fórum upp í San Fran. Þar var líka óvenju heitt miðað við venjulega, því það er yfirleitt ekki heitara þar en ca. 20°C.

Þetta er búið að vera óvenju heitt sumar, hver hitabylgjan á fætur annarri. Þegar við höfum verið að ferðast svona þá er slatti af bílum sem eru úti í kanti vegna ofhitnunar, ferlegt vesen.

Við sáum svo í fréttunum áðan að þó nokkrir bæir hérna urðu rafmagnslausir í dag vegna þess að allt of mikil rafmagnsnotkun var. Ég ætla bara rétt að vona að við verðum ekki rafmagnslaus í þessum hita á morgun :-)

4 Comments:

Blogger Begga said...

Ég öfunda ykkur nú soldið af þessum hita :) Við komum næst í júlí!!! Ég ligg yfir myndunum og læt mig dreyma, langar strax aftur að koma út.

3:44 AM  
Blogger Edda said...

Nei Begga mín, ég mæli ekki með að koma í júlí. Vorum einmitt að segja að best væri að vera ekki hérna í lok júlí byrjun ágúst. Besti tíminn til að koma hingað er í lok ágúst byrjun sept., þá er flott veður (hingað til a.m.k. :-)

8:49 PM  
Blogger Begga said...

Kannski aðeins flóknara þar sem skólarnir eru byrjaðir þá :(
En við komum aftur :-) Spurning um á hvaða tíma og hvort það verði öll fjölskyldan eða bara ÉG ein heheheh

6:20 AM  
Blogger Begga said...

Ég ætla að reyna að gera tilraun til að hringja í þig í kvöld. Hlakka til að heyra í þér.

6:22 AM  

Post a Comment

<< Home