Monday, September 11, 2006

Skólinn byrjaður

Systurnar voru báðar að byrja í skólunum sínum. Ýr í sama skóla og í fyrra og Elísabet í nýja skólanum sínum. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá var hún Elísabet mín MJÖG stolt af sjálfri sér, að vera í skóla eins og stóru krakkarnir. Það er svo fyndið hérna í USA að er ekki bara um að ræða leikskóla eins og á Íslandi heldur er talað um annars vegar "learning based" skóla og hins vegar "play based" skóla. Eins og nöfnin gefa til kynna þá er áherslan á þeim fyrri lögð á að læra og á hinum að leika. Svo nú er Elísabet 2 daga í einum skólanum og 3 daga í viku í hinum. Bandaríkjamenn geta meira að segja gert þessa hluti flókna :-)
Ýr er mjög ánægð að vera komin aftur í skólann sinn og hitta alla krakkana aftur. Þetta er líka svo skemmtilegur skóli sem hún er í.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home