Thursday, September 21, 2006

Ágústferð til Santa Barbara

Við stelpurnar fórum með mömmu til Santa Barbara um miðjan ágúst. Við keyrðum niður eftir þjóðvegi 1, sem liggur niður eftir vesturströnd Californiu. Þessi leið er ein sú fallegasta sem ég hef keyrt eftir, ekki í fyrsta skipti sem ég keyri þessa leið og örugglega ekki í síðasta skipti.

Við sem sagt keyrðum niður eftir ströndinni, með nokkrum stoppum á leiðinni. Við gistum í Santa Barbara í nokkrar nætur og nutum þess að slappa þar af. Santa Barbara er frábær bær, mjög afslappaður og skemmtilegur. Við keyrðum líka til Solvang sem er lítill bær rétt hjá Santa Barbara og alltaf talað um hann sem hin danska höfuðborg USA. Mjög skemmtilegur lítill bær með miklum dönskum áhrifum og dönskum vínarbrauðum. Á leiðinni heim ákváðum við að keyra niður til LA því mamma hefur aldrei komið þangað áður, við vorum líka svo nálægt LA. Kíkið á myndirnar hérna til hliðar. Þetta var frábær ferð, afslappandi og skemmtileg.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home