Græna kortið
Græna kortið þekkja flestir. Ef ekki, þá er þetta það sem gerir fólki kleyft að búa og vinna í USA eins og þeir vilja. Fólk sem hefur áhuga á því ýmist giftist amerísku fólki, tekur þátt í hinu árlega grænakorts lottói eða eins og Gummi, fer að vinna hjá fyrirtæki sem sækir um þetta fyrir okkur. Venjulega ferlið er þannig að fólk fer á ákveðinn visa-status (H í okkar tilfelli) sem það hefur bara í nokkur ár. Visa statusinn okkar leyfði Gumma að vinna en ekki mér. Á meðan vinna lögfræðingar á vegum fyrirtækisins í því að fá græna kortið fyrir okkur. Þetta tekur venjulega mörg ár og MIKLA skriffinsku. Í okkar tilfelli tók það eitt ár og tvo mánuði. Við sem sagt erum komin með græna kortið og ég má fara að vinna, jibbí. En nú er bara að finna vinnu og finna e-ð fyrir mig. Ég bjóst ekki við þessu fyrr en í fyrsta lagi næsta sumar svo ég er enn að ná þessu. En nú er bara að ranka við sér og finna e-ð að gera.
Ég á svo góðar vinkonur hérna að þær buðu mér í hádegismat á föstudaginn síðasta til að halda upp á þetta. Gáfu mér falleg kort, kveðjur og gjafakort. Ferlega sætt af þeim.
Jæja núna erum við Gummi sem sagt orðin lögleg hérna í USA :-)
Ég á svo góðar vinkonur hérna að þær buðu mér í hádegismat á föstudaginn síðasta til að halda upp á þetta. Gáfu mér falleg kort, kveðjur og gjafakort. Ferlega sætt af þeim.
Jæja núna erum við Gummi sem sagt orðin lögleg hérna í USA :-)

1 Comments:
Til hamingju með græna kortið.
Ég vil taka það fram að ég giftist ekki Bandaríkjamanni fyrir græna kortið. Það var bara ánægjulegur bónus. hehe
Post a Comment
<< Home