Walkathon
Í dag fórum við á skemmtun uppi í skóla hjá Ýr sem kallast Walkathon. Þá sjá krakkarnir um að safna styrktaraðilum sem styrkja þau til að labba eða hlaupa. Það er gerð braut á skólalóðinni og þar labba/hlaupa þau marga hringi. Ýr mín hljóp til að mynda 28 hringi, ferlega dugleg. Þetta er mjög skemmtilegur dagur þar sem öll fjölskyldan tekur þátt. Það er boðið upp á mat og drykki. Mjög skemmtilegur dagur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home