Haust og Halloween
Það er greinilega komið haust úti, laufin að verða gul, rauð og appelsínugul. Ofsalega fallegt veður hérna þessa dagana. Rigndi í síðustu viku í fyrsta skipti frá því í byrjun maí. Ágætis tilbreyting svo lengi sem það styttir upp á milli.
Mér finnst haustið einn fallegasti tími ársins og líka einn sá skemmtilegasti. Þá er skólinn ný byrjaður hjá stelpunum mínum, Halloween og Thanksgiving á næsta leiti og jólin aðeins lengra í burtu. Þá fer veðrið aðeins að kólna, ekki of mikið samt.
Þar sem Halloween er að koma hjá okkur eftir rúma viku þá fórum við á Pumpkin Patch á föstudaginn með nokkrum vinum. Pumpkin Patch er nokkurs konar markaður í sveitinni sem selur grasker. Í staðinn fyrir að við förum sjálf að tína þau af akrinum þá er búið að tína þau fyrir okkur og dreifa þeim yfir stórt svæði og fólk getur labbað á milli og valið hvað þau vilja kaupa. Þarna er svo líka boðið upp á ýmislegt annað fyrir krakka, eins og völundarhús, lestarferð og svol. hluti. Hefðin er sú að allir finna sér pumpkin, sérstaklega krakkarnir, og svo er farið heim með það þar sem það er skorið út og kerti sett inn í og kallast þá Jack O´Lantern.

Í næstu viku á Halloween, 31.okt., þá fer Ýr mín með Halloween búninginn sinn í skólann. Bekkurinn hennar verður með partý sem þau plana sjálf og svo verður skrúðganga um campusinn sem allur skólinn tekur þátt í og allir í búningum. Seinna um daginn er svo Halloween hátíð í Google fyrir krakkana. Um kvöldið er okkur síðan boðið í Trick or Treat til vinkonu Ýrar, þar sem stór hópur hittist í búningunum og allir fara í Trick or Treat milli húsa í nágranna götunum. Þetta er mjög skemmtilegt skemmtilegur dagur.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home