Komin aftur heim
Jæja, núna erum við komin aftur heim eftir frábæra Íslandsferð. Takk allir kærlega fyrir að taka svona vel á móti okkur, það er alltaf jafn gaman að koma til Íslands. Við hlökkum bara til að koma aftur til ykkar í sumar.
Ferðin heim gekk mjög vel. Við gistum eina nótt á hóteli í Boston rétt hjá flugvellinum áður en við komumst alla leið heim. Þó að það sé alltaf gott að koma heim þá söknum við ykkar allra voðalega mikið.
Þegar við komum heim var veðrið alveg frábært hérna, "June-bugs" fóru meira að segja að birtast (ógeðslegar litlar rauð-svartar pöddur sem fljúga, reyndar fljúga þær bara á hvað sem er, sem sagt klessa á, detta í jörðina og liggja síðan þar þangað til þær deyja, síðan heyrir maður þyrluhljóðin frá þeim langar leiðir, frekar ógeðslegt). Þær sem sagt eiga að koma í júní en vegna veðurs þá hafa einhverjar þeirra ruglast í ríminu.
En núna á aðeins 2 vikum þá er kuldinn orðinn svo mikill hérna að það er farið að snjóa aðeins í fjöllunum fyrir ofan okkur, það snjóaði meira að segja í hluta LA, m.a. Malibu. Getið þið ímyndað ykkur þegar það snjóar þar sem ALDREI snjóar og fólk er eingöngu á sumardekkjum. Skelfilegt. Í fréttunum áðan voru sýndar myndir af bílum sem bara runnu hægt og rólega á hvorn annan. Ekkert hægt að gera. Kuldinn er það mikill hérna að ég er alltaf í þykku úlpunni minni. Úlpu sem ég tók ekki einu sinni til Íslands og hef reyndar ekki notað síðan ég kom til Íslands í janúar fyrir ári. Það er svooooo kalt hérna þessa dagana.
Um næstu helgi erum við síðan að fara í skíðaferð upp til Lake Tahoe. Ég hlakka ekkert smá til, það er allt of langt síðan ég fór síðast á skíði. Ég hef aldrei farið þarna upp eftir áður svo það verður gaman að sjá hvernig skíðaaðstaðan er. Ég og vinkona mín ætlum að reyna að komast á snjóbrettanámskeið. Við erum að fara í góðra vina hópi og verðum öll saman á íbúðarhóteli á skíðasvæðinu. Ég vona bara að kuldinn verði ekki brjálaður :-) Fór einmitt núna í gær að kaupa hjálm og skíðagleraugu fyrir stelpurnar. Þær eru líka rosalega spenntar.
Reyni að setja inn myndir sem allra fyrst.
Knús og kossar, Edda.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home