Tuesday, November 21, 2006

Á ströndina í nóvember

Það var óvenju gott veður hjá okkur um síðustu helgi, um 20 stiga hiti, svo við ákváðum að fara á ströndina. Fórum á nýja strönd sem er hérna rétt hinu megin við fjöllin, 20 mín. í burtu. Rétt hjá ströndinni er lítill dalur þar sem fiðrildi búa. Við löbbuðum inn í dalinn og þar var allt krökkt af fiðrildum, risa stór og falleg. Þegar þau svo sofa þá hanga þau á hálf berum trjágreinum og hanga hvert á öðru. Ferlega skemmtilegt að sjá þetta. Eftir að við skoðuðum þetta fórum við niður á ströndina með nesti og nýja skó og nutum þess að sitja og leika í sandinum. Áður en við fórum heim þá skoðuðum við tide pools sem voru þarna á ströndinni (veit ekki hvað það heitir á ísl.) Ef einhver veit ekki hvað "tide pools" eru þá er það þegar kemur fjara og sjór verður eftir í holum í klettum. Í þessum pollum er hægt að finna alls konar sjávardýr. Við sáum meðal annars krossfiska, kuðunga, snigla, sjávarblóm og fleiri sjávardýr.

Það var frekar skrýtið að vera á ströndinni þegar það var allt á kafi í snjó á Íslandi. Ég fékk nefninlega myndir af snjónum á Íslandi frá vinkonu minni.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home