Tuesday, December 26, 2006

Veikindi enn og aftur á Íslandi

Jæja, smá framhald af okkur. Við fengum til okkar töskurnar eftir nokkur símtöl í tapað fundið á flugvellinum. Ég held að þeim hafi fundist ég vera e-ð að gera of mikið úr hlutunum. Ekkert mál að vera ekki með föt á börnin mín eða jólagjafirnar þeirra. Síðan fundust fyrst bara 3 töskur af 4 og þá fékk ég þau svör að ég ætti að vera fegin að þau hafi nú fundið 3 af fjórum. Þetta fannst mér nú frekar fyndið svar, mig langaði að spyrja hvort þau ættu að fá fundarlaun fyrir fyrst þau fundu nú þrjár af fjórum!!! En að lokum fannst fjórða taskan. Þá tóku við veikindi hjá Elísabetu. Hún vékk hita, illt í eyrun og hósta. Pabbi hans Gumma setti hana á sýklalyf, svo eyrun löguðust en hitinn og hóstinn voru enn til staðar. Svo núna er hún búin að vera veik í viku og er loksins orðin þokkalega góð. Eftir aðeins nokkurra daga veikindi hjá henni þá varð ég veik. Aðfangadagur lofaði því ekki góðu hjá okkur, en ég sem lyfjafræðingur dópaði mig og Elísabetu upp svo allir voru frekar hressir :-)

Áttum að vera í fjölskylduboði í gær en slöppuðum bara af heima vegna veikinda. Í kvöld ákváðum við svo að fara í

0 Comments:

Post a Comment

<< Home