Wednesday, February 21, 2007

Nokkrar strandaferðir

Mamma ákvað að koma í heimsókn til okkar síðastliðinn miðvikudag. Rosa gaman að fá hana aftur til okkar. Stelpurnar voru mjög spenntar. Mamma er ekki mikið fyrir að plana fram í tímann svo hún ákvað að koma til okkar með 2ja daga fyrirvara :-) En samt alltaf jafn gaman að fá hana.

Veðrið hérna síðustu daga hefur verið mjög gott, svo á laugardaginn síðasta fórum við á Natural Bridges strönd sem er hérna rétt hjá okkur, í Santa Cruz. Það var gott að komast aðeins í sandinn og sjóinn. Vorum með nesti, skóflur og fötur. Frábær dagur eins og sést á myndunum hér til hliðar. Okkur Gumma fannst ferlega fyndið að hugsa til þess að á meðan við vorum á ströndinni þá var vinafólk okkar á skíðum upp í Tahoe sem er ekki langt frá okkur.

Á mánudaginn síðasta fór Gummi í vikuferð til London, stelpurnar eru í svokölluðu vetrarfríi úr skólanum alla vikuna, svo ég, mamma og stelpurnar ákváðum að skella okkur suður eftir ströndinni. Enduðum á hóteli á Avila Beach. Ágætis strönd (rétt norðan við Santa Barbara) og fínt hótel. Fórum á ströndina, sund og slöppuðum af. Eyddum einni nótt þarna. Alltaf jafn fallegt að keyra niður eftir route 1, mæli eindregið með því. Á leiðinni niður eftir stoppuðum við til að skoða "elephant seals". Þið getið séð myndirnar hér til hliðar.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home