Monday, February 26, 2007

Skíðaferð í miklum snjóstormi

Skelltum okkur á skíði yfir helgina og fórum aftur í Squaw Valley uppi í Tahoe. Lögðum af stað eldsnemma á laugardagsmorgninum og vorum komin þangað rétt rúmlega níu um morguninn. Það var kominn talsvert meiri snjór í fjöllin heldur en síðast þegar við fórum. Byrjuðum á barnabrekkunum með stelpurnar. Þeim gekk ótrúlega vel. Ég var með Elísabetu á milli fótanna og við renndum okkur á fleygiferð niður. Eftir því sem leið á daginn þá fór snjókoman að verða meiri og vindurinn líka. Við létum það ekki á okkur fá. Ég skellti mér upp í stærri brekkurnar og Gummi stakk upp á því að ég tæki Ýr mína með. Þar sem ég hafði aldrei farið í þessa brekku þá vissi ég ekki hvort Ýr væri tilbúin eða ekki. Við fórum saman í stólalyftuna og héldum upp brekkuna. Eftir því sem við komumst ofar því verra varð skyggnið, mér leist nú ekki alveg á blikuna því við vorum komin svo rosalega langt upp á fjallið (sást ekki lengur í bæinn fyrir neðan :-) Þegar í brekkuna var komið þá komst ég fljótlega að því að þetta var aðeins of mikið fyrir Ýr mína. Of mikið af fólki, of mikill vindur og of mikil snjókoma. En við komumst niður, þó það hafi tekið okkur talsvert langan tíma, og Ýr var ótrúlega dugleg, þetta var nú líka bara þriðji skíðadagurinn hennar yfir ævina.

Eftir langan og góðan skíðadag tékkuðum við okkur inn á hótelið okkar. Miðað við hvað þetta er frekar lítill bær þá eru talsvert mörg hótel þarna og skálar til leigu. Við pöntuðum hótelið okkar með mjög stuttum fyrirvara á netinu og enduðum því á einu af fínni hótelunum þarna. Á hótelinu sjálfu voru 4 veitingastaðir, búðir, sundlaug og pottur, spa, leikherbergi fyrir krakkana, skautasvell og fleira og fleira. Hótelið var líka með sínar eigin stólalyftur. Mjög skemmtilegt hótel. Við fengum okkur gott að borða og löbbuðum um svæðið.

Morguninn eftir þegar við svo vöknuðum þá var ennþá mikil snjókoma og við heyrðum þegar þeir voru að sprengja uppi í fjöllunum svo það færu ekki af stað neinar snjóskriður. Allt var á kafi í snjó úti, alveg meiriháttar. Gummi dreif sig inn í bæinn og ætlaði að skrá Elísabetu á námskeið svo við hin gætum farið í almennilegar brekkur og skíðað og farið á bretti. Þar komst hann að því að veðrið var svo slæmt að lyfturnar yrðu ekki opnaðar allan daginn. Þá ákváðum við líka að koma okkur heim sem fyrst því þegar maður fer frá Tahoe þá þarf að keyra í gegnum skarð. Þegar það er svona mikil snjókoma þá lokast þetta skarð mjög oft, bæði vegna of mikillar snjókomu, Kaliforníubúa sem hafa aldrei keyrt í svona miklum snjó eða þegar trukkar og illa búnir bílar festa sig. Þeir sem eru líka á öllum hinum skíðasvæðunum í kring þurfa líka að keyra í gegnum þetta skarð og ég held að flestir hafi hugsað eins og við því það tók okkur AÐEINS tæpa 9 tíma að keyra heim, ferð sem yfirleitt tekur tæpa 4 tíma. Sem betur fer vorum við með mat, drykk, videó og góða skapið með okkur. Á meðan við fórum í gegnum skarðið þá var skyggnið stundum það lítið að við sáum ekki bílinn fyrir framan. Ég tók nokkrar myndir úr bílnum og setti þær hér til hliðar. Þetta var ferlega skemmtileg ferð þó svo við gátum ekki skíðað eins mikið og við vildum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home