Litríkt líf í SF
Það er alltaf jafn fyndið að keyra upp til SF, alltaf e-ð óvænt sem gerist í ferðunum þangað. Það er mjög litríkt fólk sem býr þar og að mínu mati er þetta ein besta og skemmtilegasta borg í heimi, ásamt NY og London. En eins og ég sagði getur maður rambað á MJÖG skrautlegt fólk þarna. Eitt skiptið þegar ég var á leiðinni heim eftir skóla var ég stopp á ljósi við 6. stræti. Á þessum ljósum stóð frekar sjúskaður róni og byrjaði að pissa. Ekki nóg með að hann hafi pissað fyrir framan mig heldur sneri hann öllu að mér. Þetta fannst mér ótrúlega fyndið.
Í gær lenti ég svo í því að við vorum að koma af MOMA og ég keyri fram hjá aðalbyggingunni í skólanum mínum. Þegar við keyrum fram hjá horninu þá sé ég enn einn rónann sitja á hækjum sér bak við bíl og kúka. Ég get svo svarið það!!! Þvílíkur viðbjóður. Þessa mynd hafði ég sem sagt í huganum þennan klukkutíma akstur heim á leið :-) Ekki nóg með að ég hafi séð það heldur í ofboði mínu og furðu varð ég að benda Gumma á það og hann átti mjög erfitt með að fyrirgefa mér það á leiðinni heim :-)
SF er engri lík.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home