Monday, March 19, 2007

Góð helgi í góðu veðri

Ég er alveg búin að komast að því að ef börnunum mínum líður vel þá líður mér vel, það er svona einfalt. Eftir að hafa búið hér í Californíu í 1 1/2 ár þá finnst mér við loksins vera að fá þokkalega góða fótfestu hérna. Erum búin að kynnast yndislegu fólki.  Allt í einu áttaði ég mig á því að þó ég verði sennilega alltaf útlendingur hérna þá er ég farin að þekkja umhverfið mjög vel, krakkarnir okkar komnir með ágætis vini og við líka. Það er gott líf þegar maður er kominn á þetta stig því ég kannast við hitt stigið, að þekkja engann og ekkert þar sem maður býr.

Við áttum frábæra helgi. Í fyrstu leit út fyrir að Elísabet yrði veik en vegna góðra meðala þá tókst henni að jafna sig ágætlega. Greyið fékk nefninlega bronkítis fyrr í vikunni. Ætluðum einmitt út að borða með vinum okkar á föstudagskvöldinu en ég komst þá að því fyrr um daginn að barnið var búið að vera með bronkítis síðustu daga, ég lagði bara ekki saman tvo og tvo :-) Hún fékk meðal og var orðin það góð á laugardeginum að við gátum hent stelpunum í pössun og farið með öðrum vinum okkar út að borða það kvöldið. Ofsalega gaman.

Í gær fórum við svo upp í San Francisco og kíktum á MOMA (Museum of Modern Art). Ýr fékk að taka vinkonu sína með sér sem endaði síðan með því að hún gisti hjá okkur yfir nóttina (þær voru báðar í fríi í skólunum sínum í dag). Eftir skemmtilegt rölt í MOMA fengum við okkur að borða á matsölustaðnum á safninu og fórum svo og hittum Lottu og Úlfar, vinafólk okkar, í kaffi, en þau búa í SF.

Sem sagt mjög góð helgi í góðu veðri.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home