Daugthermann og amman í flugvélinni
Það er ferlega fyndið að spyrja Elísabetu hvað hún heitir fullu nafni. Hún svarar svona: "Elizabeth Tara Daugthermann" með góðum amerískum hreim. Ótrúlega fyndið.
Hún er ofsalega upptekin þessa dagana af því að eiga ömmur og afa. Síðan amma hennar (mamma mín) fór í febrúar þá er hún búin að vera mikið að velta því fyrir sér hvert hún fór eiginlega og vill líka endilega að hún komi aftur í húsið sitt, eins og hún orðar það. Hún er búin að komast að þeirri niðurstöðu núna að þar sem amma hennar fór með flugvél þá er hún sennilega ennþá í flugvélinni. Við erum búin að reyna að segja henni að amma hennar tók flugvélina heim til sín en þá fær maður bara svip frá henni, æj mamma ruglaða. Við vorum að keyra heim í gær og vorum stopp á rauðu ljósi. Þá heyrum við í flugvél fyrir ofan. Elísabet varð þá voða spennt og sagði, "Hey mamma, ég heyri í airplain þarna uppi. Þarna er amma".
Síðan var hún að fara að sofa um daginn og amma hennar hringdi (ennþá sama amman). Eftir að amma var búin að tala við Ýr þá fékk Elísabet að tala við hana. Hún settist með símann á rúmið sitt og vissi greinilega ekkert við hvern hún var að tala. Fór að segja frá ömmu sinni sem væri nú í flugvélinni. Ég benti henni þá á að þetta væri amman sem væri í flugvélinni. Mín varð nú heldur betur spennt og hló og skríkti og fór síðan að reyna að sýna ömmu sinni allt sem var í herberginu hennar í gegnum símann.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home