Sunday, April 15, 2007

Góður skyndibitamatur

Við Gummi erum núna mikið fyrir að prófa nýja matsölustaði, hvort sem það eru skyndibitastaðir eða veitingastaðir. Fórum með vinafólki okkar á líbanskan "skyndibitastað" í dag, Falafel Drive In. Þetta er svona staður sem ég hefði sennilega aldrei farið á af sjálfsdáðum. Hann leit ekki út fyrir að vera neitt neitt. Þegar við mættum þangað þá héldum við Gummi að við hefðum farið á vitlausan stað en viti menn vinir okkar mættu hress á staðinn. Þessi staður er víst búinn að vera til staðar síðustu 20 árin og búinn að fá slatta af viðurkenningum. Maturinn var líka mjög góður. Í denn var þetta svona "drive through" en núna er búið að breyta því þannig að þú pantar enn í gegnum lúgu en núna eru stólar og borð úti undir skýli. Þegar við sátum þarna öll að borða undir skýlinu byrjaði að rigna. Himininn varð bókstaflega svartur og rigningin buldi niður. Maturinn var mun betri en veðrið, reyndar alveg frábær miðað við að um skyndibitamat var að ræða. Auk þess var þetta mun hollara en margt annað, næstum eins og grænmetis píta. Þarna fékk ég meðal annars einn besta sheik sem ég hef fengið, ananas sheik. Næst er stefnan tekin á mexikanskan stað hér í bænum okkar sem vinir okkar mæltu með. Þau eru mikið fyrir að prófa alltaf nýja staði. Læt ykkur vita hvernig bragðast. Pósta líka myndum sem ég fann á netinu af þessum stað.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home