Wednesday, April 18, 2007

Easter Egg Hunt

Fórum í Easter egg hunt um daginn heima hjá vinafólki okkar sem býr hérna uppi í fjöllunum fyrir ofan okkur. Þau búa í meiriháttar húsi með útsýni yfir dalinn, þetta er svona hús sem maður sér í Dwell magazine. Það vill svo vel til að þessir vinir okkar eiga eina stelpu sem er jafn gömul Ýr og eina sem er jafn gömul Elísabetu, og jafnvel enn betra að þær eru allar mjög góðar vinkonur.

Þetta var fyrsta Easter egg hunt sem mínar stelpur hafa farið í held ég. Þar af leiðandi vissi Elísabet mín ekki alveg hvað var að gerast. Fann eitt egg og kom með það í körfunni sinni sigri hrósandi, "ég fann það, ég fann það". Við útskýrðum fyrir henni að hún ætti að finna fleiri, ég veit ekki hvert hún ætlaði. Æddi af stað í þvílíkum ham, því það er sko nammi inni í þessum eggjum. Þvílíkt nammiflóð sem kom út úr þessu öllu saman.


0 Comments:

Post a Comment

<< Home