Trjáklippingar
Síðustu helgar höfum við verið að taka garðinn okkar í gegn. Við fengum meðal annars trjákarla til að koma hingað og klippa trén okkar og snyrta. Þeir tóku líka niður risa stórt furutré sem við vorum með í garðinum, þvílíkur léttir. Í hvert skipti sem við notuðum trampólínið okkar þá þurti að sópa furunálunum af, þvílíkt vesen. Auk þess var þetta tré ekkert voða fallegt. Rétt eftir að þeir voru búnir að klára þetta verk hitti ég nágranna mína úti á götu. Þegar ég var búin að spjalla við þau í smá tíma þá fóru þau að spyrja hvort við hefðum gert e-ð við húsið okkar, einhverjar breytingar eða e-ð. Ferlega fyndið að bara það að klippa trén og taka til í garðinum okkar leiddi til þess að húsið okkar leit út fyrir að hafa farið í make-over. Svo nú blómstra rósirnar okkar og húsið lítur mun betur út.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home