Prinsessuferð
Í tilefni af því að litla stelpan mín er að verða 4 ára þá fórum við mæðgur með fjórum vinkonum mínum og dætrum þeirra, sem allar eru líka að verða 4 ára og mjög góðar vinkonur Elísabetar, til Disneylands. Fórum þangað í eina nótt og einn dag. Hittum fullt af prinsessum og meira að segja prinsa líka. Elísabet var alveg jafn uppveðruð af prinsunum eins og prinsessunum, spjallaði mikið við þau öll :-) Við lögðum af stað eldsnemma á fimmtudagsmorgni, tókum flug niður til LA. Eyddum öllum deginum í Disneylandi í tækjum, prinsessuleit og að hafa gaman. Eftir að hafa horft á kvöld skrúðgönguna þá fórum við á Disneyhótelið okkar og héldum svo aftur heim daginn eftir, 5 litlar prinsessur og mömmur þeirra.Þvílík ævintýraferð, rosalega gaman.

2 Comments:
Til lukku með prinssessuferðina litla sæta prinsessa.
Og til lukku með afmælið bráðum.
knús og kossar
Elsa Rán, Hrafnhildur og Halli
Vá, hvað þetta hefur verið skemmtileg ferð hjá ykkur. Þvílíkar prinsessur!!!!Ekkert smá flottar :-) Elsku Elísabet, eigðu ofsalega góðan afmælisdag á laugardaginn. Við verðum í Osló en munum hugsa til þín.
Bestu kveðjur til ykkar allra frá
okkur í Englandi,
Inga Rósa og fj.
Post a Comment
<< Home