Monday, October 01, 2007

Body worlds og afmælispartý

Frábær helgi að baki. Fór á föstudeginum út að borða með vinkonum mínum í tilefni afmælis einnar þeirrar. Þvílíkt fjör. Fórum á frábæran grískan veitingastað niðri í bæ.
Á laugardeginum fórum við Gummi og stelpurnar á sýningu um mannslíkamann sem sýnd var í Tech Museum í San Jose. Þessi sýning var með alvöru mannslíkömum sem fólk hafði gefið eftir að það lést, kallast Body worlds. Meiriháttar sýning. Þarna var hægt að sjá lungu úr reykingamönnum, hjarta, beinagrindur og fleira. Þetta hljómar hræðilega en er í rauninni ótrúlega fræðandi og flott að sjá (skrýtið að segja þetta :-)
Á sunnudeginum vorum við svo með afmælispartý fyrir Ýr mína. Ég veit, hún átti afmæli í júlí, en þar sem við vorum á Íslandi í sumar þá ákváðum við að leyfa henni að halda partý fyrir vinkonur sínar. Við héldum partýið á stað með RISA stórum trampólínum, Sky High Sports. Þarna var hoppað og skoppað, borðað pizzu og hestaköku :-)
Á laugardagskvöldinu náðum við Gummi að troða einhverstaðar inn bíói og út að borða bara við tvö.

Sem sagt, mjög góð helgi.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home