Sunday, May 27, 2007

Litli grallarinn hún Elísabet

Hún Elísabet mín á eftir að koma mér í vandræði einhvern daginn. Í dag tók ég stelpurnar með mér að kaupa tösku fyrir ferðalagið okkar til Íslands í sumar. Þegar ég var búin að skoða töskurnar í búðinni og búin að velja eina sem Elísabet ákvað að draga að kassanum þá sá ég að hún var að setja e-ð ofan í töskuna. Þegar ég kem nær þá er hún að setja alls konar ferðadót þar ofan í, eins og sápuhulstur, tannburstahulstur o.s.frv. Ég reyndi nú að benda henni á við yrðum að borga þetta áður en það færi ofan í töskuna. Mjög erfitt að fara ekki að hlæja þegar hún gerir svona hluti. Næst var svo haldið í næstu búð að kaupa ferða DVD spilara, þar sem að gamli okkar gaf sig fyrr í vetur eftir að hafa spilað fyrir okkur grimmt í næstum 4 ár. Í röðinni við kassann þá sér Elísabet einhvern kisu tölvuleik sem hún fór að skoða. Þegar kemur svo að mér í röðinni þá fer ég að kassanum og legg töskuna mína á borðið ásamt því sem ég ætla að kaupa. Ég opna svo töskuna til að ná í veskið mitt og viti menn þar blasir við mér kisuleikurinn sem mín hafði verið að skoða. Hún hafði þá bara stungið honum þar í því hún vissi ekki hvað annað hún ætti að gera við hann, ekki gat hún lagt hann á gólfið. Ég tók hann mjög vandræðaleg upp úr töskunni, en þakkaði bara fyrir hljóði að hafa ekki labbað út með hann, því þá hefði þjófavarnarkerfið í búðinni farið að glymja.

1 Comments:

Blogger herdist said...

Æi en neyðarlegar uppákomur, en samt svo sætt. Hlakka til að sjá ykkur í næstu viku.

kv. Herdís

2:21 PM  

Post a Comment

<< Home