Mjög skemmtileg heimsókn
Hún Kristín vinkona mín og Einar maðurinn hennar komu í heimsókn til okkar um síðustu helgi. Meiriháttar gaman að fá þau hingað. Þau voru á ráðstefnu uppi í San Francisco og höfðu smá tíma til að kíkja suður í flóann til okkar. Gummi tók sér frí hálfan föstudaginn, svo þegar Kristín og Einar komu til okkar þá fórum við með þau í ekta amerískan brunch á mjög skemmtilegum stað í bænum okkar, kallast Western Kitchen. Ekki kannski staður sem maður vill fara á á hverjum degi því kaloríumagnið þarna er aðeins of mikið, samt ótrúlega gott. Næst náðum við í stelpurnar okkar og keyrðum yfir fjöllin til Santa Cruz. Við sýndum Kristínu og Einari "Santa Cruz Boardwalk" og "Natural Bridges Beach". Um kvöldið fórum við svo fjögur út að borða á frábæran Grískan veitingastað niðri í bæ, Dio Deka, frábær endir á góðum degi.Daginn eftir keyrðum við niður til Carmel, röltum um bæinn, fórum á ströndina og römbuðum líka á listasýningu þar í bænum. Alltaf jafn gaman í Carmel. Í lok dagsins fóru svo Kristín og Einar aftur upp í borg.
Á sunnudeginum fór ég svo upp í borg og hitti skötuhjúin í hádegismat og eyddi deginum með Kristínu í San Fran.
Takk kærlega fyrir komuna Kristín mín og Einar, ofsalega gaman að sjá ykkur bæði. Hlökkum til að fá ykkur aftur :-)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home