Wednesday, November 07, 2007

Skólapartý og jarðskjálfti

Daginn fyrir Halloween, 30. okt., var kvöldskemmtun í leikskólanum hennar Elísabetar í tilefni af því að Halloween var daginn eftir. Þetta var voða skemmtilegt, allir krakkarnir í Halloween búningunum sínum. Það var sýnt leikrit, borðaðar kökur og sungið, mikið fjör. Ég set inn myndir hérna til hliðar.
Þegar við vorum á leiðinni heim, vorum að labba út úr skólabyggingunni þá kom jarðskjálfti, 5.6 á Richter. Þetta var rosa skrýtið, hef aldrei fundið fyrir skjálfta svona sterkt áður. Ég bókstaflega sá húsið sem við vorum í liðasta fram og til baka. Sem betur fer skemmdist ekkert í skólanum og ekkert heima hjá okkur. En við heyrðum sögur af fólki í hverfinu okkar sem varð fyrir hinu og þessu tjóni, ekkert alvarlegt samt sem betur fer.
Þetta varð til þess að við Gummi ákváðum að fara all hressilega yfir jarðskjálftaplanið okkar eða emergency planið okkar. Varabirgðirnar okkar og setja niður plan ef e-ð kemur fyrir. Öllum hérna á svæðinu er ráðlagt að gera þetta, sérstaklega þegar svona mikil jarðsjálftahætta er hérna.
En þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld og við fórum heim með tvær stelpur í sykurvímu.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home