Frábær Halloween dagur
Ég verð nú að segja að þetta er eitt skemmtilegasta tímabil ársins að mínu mati. Byrjar með pumpkinskurði, síðan Halloween, síðan kemur afmælið mitt og Elísabetar, Thanksgiving og svo jólin, allt á bara 2 mán. Halloween núna í ár var mjög skemmtileg. Um morguninn fórum við í skólann hennar Ýrar þar sem allir krakkarnir gengu í skrúðgöngu um skólakampusinn í búningunum sínum, síðan var smá partý fyrir hvern árgang. Um eftirmiðdaginn fórum við til vina okkar sem héldu risa Halloween partý. Þegar tími var svo til að fara að betla nammi í trick or treat þá fór allur krakkaskarinn út saman og labbaði hús úr húsi. Við fórum nokkur fullorðin með því einhver varð að hafa auga með þessum grísum. Síðan héldum við aftur heim til vina okkar og krakkarnir tróðu smá meira nammi í sig. Í ár vorum við öll fjölskyldan í búningum sem gerði þetta ennþá skemmtilegra. Ýr var Hermione, Elísabet fiðrildi, Gummi sjóræningi og ég vond norn. Ég held að Elísabet hafi meira að segja verið smá hrædd við mig :-)
Set inn nokkrar myndir hér til hliðar.
Set inn nokkrar myndir hér til hliðar.

2 Comments:
Elsku Edda mín :)
innilega til hamingju með daginn um daginn ...
Komiði heim um jólin ???
Takk kærlega fyrir afmæliskveðjuna Nína mín. Nei við komum sennilega ekki til Íslands fyrr en næsta sumar. Hlakka til að sjá þig þá.
Post a Comment
<< Home