Saturday, January 26, 2008

Erum við komin til Íslands?

Ég var að hjálpa Elísabetu út úr bílnum um daginn í grenjandi rigningu. Um leið og ég opna hurðina þá kemur stór vindkviða. Hún lítur þá á mig og segir " Mamma, erum við núna komin til Íslands?". Greyið barnið hélt sem sagt að þar sem veðrið var svona rosalegt að þá værum við komin til Íslands. Ótrúlega sætt.

1 Comments:

Blogger Unknown said...

haha, svipað og með hana Brynju litlu og Ásu, Ása er sko soldið mikið í London þessa dagana og sú litla spurði mjög vonsvikin um daginn þegar hún var að fara út í enn eina ferðina:
"en mamma, getur enginn eiginlega unnið á tölvur útí London nema þú sért á staðnum? kann enginn þar á tölvur?!"

12:31 PM  

Post a Comment

<< Home