Óveður
Við höfum oft verið vöruð við miklu óveðri í fréttunum hérna. Alltaf höfum við beðið eftir einhverju miklu en aldrei neitt gerst hingað til. Það var varað við miklum vindum og rigningu síðastliðinn föstudag. Við héldum að þetta yrði eins og vanalega, sem sagt ekkert. Á föstudagsmorgninum vöknuðum við Gummi upp við brjálað veður. Við heyrðum einhver læti úti og sáum þá hvar stóra sóltjaldið okkar hafði hreinlegt lagst saman og fokið burt, hliðið okkar hafði brotnað og dót í garðinum okkar hafði fokið hingað og þangað. Svo við Gummi rukum út í garð og fórum að bjarga því sem bjargað varð. Hlupum um í rigningunni og rokinu. Þegar við loksins komumst inn í hús aftur þá vorum við blaut inn að beini. Stuttu eftir að Gummi fór í vinnuna þá fór rafmagnið af í hverfinu okkar. Þar sem stelpurnar voru ekki byrjaðar í skólunum sínum þá flúðum við í næsta hverfi til vina okkar sem enn voru með rafmagn. Á leiðinni þá tók ég þessar myndir á símann minn. Klikkið á þær til að sjá þær stærri. Getið líka kíkt á aðrar myndir á þessum link http://www.nbc11.com/slideshow/14980305/detail.html?taf=bay

Trjágreinar og jafnvel stundum heilu trén lágu hér og þar á götunum, jafnvel ofan á bílum. Ég þurfti oftar en ekki að þræða mig framhjá trjánum. Þegar við keyrðum heim aftur þá voru öll hverfin sem við keyrðum í gegnum án rafmagns. Það var ekki fyrr en við komum að götunni okkar að við sáum ljós í húsunum, sem betur fer var húsið okkar eitt þeirra. Í dag, laugardag, hélt rigningin svo áfram svo um munaði með þrumum og eldingum og við misstum aftur rafmagnið, en þó bara í 3 tíma sem betur fer. Við krossum svo bara fingur og vonum að rafmagnið okkar haldist, það á víst að rigna út vikuna.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home