Monday, March 31, 2008

Heimsókn og páskar

Jæja, við erum á leiðinni til Íslands í byrjun júní og verðum til miðjan júlí.  Hlakka rosalega til að hitta ykkur öll.

Annars erum við búin að bralla ýmislegt síðustu vikurnar.  Pabbi kom í heimsókn til okkar í rúmlega viku.  Rosalega gaman og gott að fá hann til okkar.  Stelpurnar voru yfir sig ánægðar auðvitað og vonandi kemur hann aftur í heimsókn sem allra fyrst.  Við náðum að fara niður á strönd með pabba áður en hann fór aftur til Íslands og fara með honum á uppáhalds gríska veitingastaðinn okkar.  Það var ofsalega gaman.

Það er ekkert páskafrí hérna eins og í Evrópu en það er samt aðeins haldið upp á páskadag.  Við náðum að fara í nokkur "Easter egg hunt", sem er alltaf rosa gaman, eyddum reyndar öllum deginum í að flakka milli vina og leita að eggjum.  Borðuðum svo kvöldmat með góðum íslenskum vinum.  Takk fyrir okkur.

1 Comments:

Blogger singullinn said...

Það verður gaman að fá ykkur á klakann :)
Hlökkum til að sjá ykkur og fá að leika aðeins við frænkurnar.

knús í krús
Halli e la famiglia

4:39 PM  

Post a Comment

<< Home