Thursday, February 28, 2008

Fjölskyldan í Barcelona

Jæja, þá erum við komin til baka. Fyrir þá sem ekki vita þá fórum við til Barcelona í vetrarfríinu. (Skólakrakkar hérna í barnaskólum fá viku vetrarfrí frá skóla og svo aftur vorfrí í apríl). Stefnan var tekin á Barcelona vegna þess að Gummi þurfti að fara þangað á ráðstefnu vikuna á undan. Svo við ákváðum að hitta hann þar eftir ráðstefnuna. Þetta var nú ekkert smá ferðalag hjá okkur. Við flugum meira að segja yfir Ísland :-) Flugum frá San Francisco til Amsterdam. Þaðan tókum við flug beint til Barcelona. Við vorum í lítilli íbúð í miðbænum sem við höfðum tekið á leigu, hentaði okkur miklu betur en að vera á hóteli og mun skemmtilegra.
Þetta var meiriháttar ferð og meiriháttar borg.  Við þræddum alla helstu túristastaðina og fórum meira að segja í svona túristastrætó.  Þetta er meiriháttar falleg borg og svo mikil listaborg. Við löbbuðum borgina þvera og endilanga.  Gengum upp á fjallið Montjuïc og sáum Ólympíu þorpið og leikvanginn frá '92, sáum einnig gömlu höllina þar, Palau National, og fallega útsýnið yfir borgina.  Við fórum líka á Miró sýningu og stelpunum fannst það mjög spennandi, fengu meira að segja plaggat að lokum með myndum eftir hann.  Þræddum þröngar göturnar í Barri Gòtic hverfinu sem var ótrúlega gaman.  Fullt af litlum sætum búðum þar og kaffihúsum.
Það var ótrúlega gaman að sjá öll Gaudi verkin og sjá hvað hann var mikill snillingur, hans verk er að finna út um alla borgina.  Helst má nefna Casa Battló (hús með drekahúð), La Pedrera (annað hús sem tekur saman öll helstu verk Gaudis), kirkjan hans Sagrada Familia (hann byrjaði á henni 1883 og hún er enn í byggingu og ekki næstum því búin), Park Güell (yndislegur garður sem er rosalega gaman að labba í gegnum).  Við uppgötvuðum Tapas mat, sem Ýr var rosalega hrifin af (litli matargikkurinn minn), og litlu sætu kaffihúsin sem eru þarna úti um allt með frábæru bakkelsi.  Stelpurnar voru ofsalega duglegar að fara á öll þessi söfn með okkur og þeim fannst það bara ofsalega gaman.  Við fórum nú líka einn daginn í dýragarðinn, held að það hafi verið hápunkturinn hjá Elísabetu.  Aparnir, górillurnar, höfrungarnir og broddgeltirnir vöktu mesta lukku.
Heimferðin okkar var ansi skrautleg en gekk samt ótrúlega vel, held að við hugsuðum þetta ekki alveg til enda þegar við pöntuðum farið í upphafi, en það hafðist nú allt saman.  Á síðasta kvöldinu okkar tók við maraþon pökkun hjá okkur þar sem við þurftum að vakna klukkan 2:30 um nóttina og leggja af stað.  Við mættum hálf sofandi á völlinn og tókum þá eftir því að það var nánast ekkert fólk þarna og allt lokað, enda mið nótt, en mjög skrýtin tilfinning samt.  Allt gekk þetta nú samt ágætlega og við erum komin aftur heim.
Verð nú að bæta því við hvað hún Ýr mín var ótrúlega dugleg að bjarga okkur foreldrunum, sem kunnum enga spænsku, þegar kom að því að tala við fólkið þarna.  Hún kann ekki svo mikið að hún geti myndað heilar setningar, en hún kann orð hér og þar (hún er að læra í skólanum spænsku) og hún stóð sig eins og hetja og ekkert feimin.
Þetta var ofsalega skemmtileg ferð og við hefðum alveg verið til í að vera lengur þarna :-)
Er að setja inn myndir hér til hliðar frá ferðinni.

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Halló kæra fjölskylda,
gaman að heyra hvað var skemmtilegt í Barcelona hjá ykkur og gaman líka að skoða myndirnar frá Barcelona...
Ýr og Elísabet orðnar aldeilis stórar og sætar stelpur :-)

Bestu kveðjur

Ásdís

10:19 AM  

Post a Comment

<< Home