Thursday, March 06, 2008

Ýmislegt

Ég gleymi alltaf að blogga og segja hvað við erum búin að vera að gera, svo ég geri bara smá summary hérna fyrir ykkur.
Minni snúllan mín fór í sleepover til vinkonu sinnar fyrir nokkrum helgum.  Ótrúleg spenna þar á ferð.  Ég held að ég hafi verið mun stressaðri en hún.  Hún fór til vinkonu sinnar á hádegi og kom ekki aftur fyrr en á hádegi daginn eftir.  Mamma vinkonu hennar hafði boðið 5 litlum 4-5 ára stelpum að gista yfir nóttina, algjör bilun.  Þær eru sem betur fer allar mjög góðar vinkonur og við höfum gert margt saman (fórum m.a. saman í Disneyland í okt.)  Mér fannst bara mesta furða að mamman var ennþá heil á geði daginn eftir!!!
Um síðustu helgi fóru Ýr og Gummi í skíðaferð saman með nokkrum örðum feðginum.  Þetta voru mest allt vinkonur Ýrar svo þetta var ofsalega gaman og stelpan mín stóð sig eins og hetja í brekkunum.  Fannst reyndar svo gaman að hún vildi helst ekki koma heim :-)
Núna á miðvikudaginn síðasta þá fór Ýr með bekknum sínum í skólaferðalag í tvær nætur til Coloma í gullleitarferð.  Fóru á slóðir gullleitarmanna hér áður fyrr.  Þetta er fjórða bekkjar ferð sem allir bíða eftir frá því þeir byrja í skóla.  Ég hlakka bara til að fá hana aftur heim og heyra hvernig var hjá henni.
Annars var Elísabet að byrja í karate eða Tae Kwon Do, finnst ótrúleg gaman.  Öskrar, sparkar og kýlir, ótrúlega fyndið.
Að lokum var Ýr að gera ótrúlega skemmtilegt skólaverkefni um daginn.  Krakkarnir eru að læra um sögu Kaliforníu fylkis og þau eru að læra m.a. um Mission í Kaliforníu.  Þau áttu að búa til líkan af einu af 40 Missionunum.  Hér er mynd af Ýrar Mission verkefni.  
Síðan áttu þau að þykjast vera fasteignasalar og selja hið raunverulega Mission til bekkjarfélaga sinna.  Hún bjó til flyera, og nafnspjald, klæddi sig upp í frakka og skyrtu.  Hélt síðan fyrirlestur.  Ofsa flott hjá henni.

2 Comments:

Blogger Unknown said...

Aldeilis flott hún Elísabet í Tae kwon do, þær eru svo duglegar báðar stelpurnar :-)
Knús

7:40 AM  
Blogger singullinn said...

Gleðilega páska elsku bananabúarnir okkar.
Vonandi hafið þið það rosalega gott um páskana.

knús og kossar
Halli,Hrafnhildur og Elsa Rán

9:44 AM  

Post a Comment

<< Home