Frábær vika
Við áttum frábæra viku. Stelpurnar voru í fríi frá skólanum og við vorum ekki með neitt planað, lofaði ekki góðu :-) En bestu vikurnar eru venjulega þær sem við plönum ekki neitt nema kannski með dags til tveggja daga fyrirvara. Eins og ég sagði áður þá var þetta rosalega skemmtileg vika og gaman að vera með stelpunum mínum án þess að vera að skutla þeim í skólann eða ballett. Við fórum í morgunmat og bíó með vinum, vinkona Ýrar fékk að gista hjá henni, náðum að kaupa sumarskó með meiru, fórum með vinum okkar í sædýrasafnið í Monterey, ísferð, hjólaferð og margt, margt fleira. Enn og aftur, frábær vika. Á laugardeginum var svo komið alveg meiriháttar veður, Gummi á landinu og ekki að vinna, jibbí. Svo við skelltum okkur á ströndina, uppáhalds ströndina mína, Carmel. Við fengum hið fullkomna strandarveður, heitt en samt ekki rakt og "stuffy". Það var mokað í sandinum, safnað steinum og skeljum, farið í ískaldan sjóinn, borðað nesti og slappað af. Um sexleitið fórum við svo að taka dótið okkar saman og stefndum að því að keyra heim. Þegar í bílinn var komið áttuðum við okkur á því að við yrðum sennilega 2-3 tíma á leiðinni heim, sem venjulega tekur 1 1/2 tíma, og við ekki búin að borða neitt nema nestið fyrr um daginn. Eins og það er nú gaman að koma til Carmel þá eru veitingastaðirnir í bænum ekki þekktir fyrir mikið umburðarlyndi gagnvart börnum, hvað þá börnum sem eru nýkomin af ströndinni :-) Svo nú voru góð ráð dýr. Á endanum fundum við pizza stað á Googlemaps á iphone-inum okkar. Ég hringdi í þá og spurði hvort þeir sendu pizzur (gerði mér alveg grein fyrir að við vorum ekki með neitt hús til að láta senda pizzuna í). Maðurinn sem svaraði sagði að þeir gerðu það, þegar ég spurði svo hvort þeir gætu sent pizzuna í bílinn minn þá var það ekkert mál og þeir meira að segja buðust til að senda pizzuna niður á ströndina þar sem við ákváðum að borða þar. Við sátum því á "picnic" teppinu okkar í sandinum, átum okkar ljúffengu pizzu og horfðum á sólsetrið. Geri aðrir betur. Þetta var alveg meiriháttar endir á frábærum degi. Á leiðinni heim voru svo allir saddir og sælir og umferðin var þar að auki nánast búin :-)









0 Comments:
Post a Comment
<< Home