Dansað með klúta
Minni snúllan mín er í dansi, sem er blanda af ballett, jazz og fleiru, bara almenn danshreyfing. Í síðustu tímum hafa stelpurnar þurft að dansa með klúta einar út á gólfi fyrir framan hinar í bekknum (ótrúlega sætt en líka ferlega erfitt). Elísabetu hefur einmitt fundist það mjög erfitt og þar sem hún vildi ekki taka þátt í síðasta tíma þá endaði hún á bekknum greyið. Svo núna í kvöld ákváðum við mæðgur að finna klút hér heima og láta á þetta reyna. Þetta var líka svona rosalega gaman að við tvær vorum hérna hoppandi og skoppandi saman út um allt hús með klútana okkar dansandi við hin og þessi lög. Ég skora á ykkur að prófa þetta, ótrúlega gaman :-)
Annars erum við tvær einar heima, því Gummi og Ýr fóru í útilegu með nokkrum öðrum feðginum og vinum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home