Wednesday, May 14, 2008

Hið fræga tré

Ég var að horfa á sjónvarpið um daginn, eins og svo oft áður.  Þegar auglýsingarnar komu á skjáinn, þá allt í einu tók ég eftir tré í einni auglýsingunni sem ég þekkti, skrýtin tilfinning.  Ég sagði þá við Gumma,"Hey, ég þekki þetta tré".  Hann hélt ég væri nú e-ð biluð.  En einhvern vegin var það ekki alveg á réttum stað í auglýsingunni.  Síðan fór það að færast frá einum stað til annars.  Þá fattaði ég allt í einu að ég hafði tekið myndir af þessu tré.  Í lok auglýsingarinnar þá endaði tréð á réttum stað og þá áttaði ég mig á því hvar ég hafði séð það, á Pebble Beach, bara aðeins búið að photoshoppa það.

Ótrúlega fyndin tilfinning að þekkja tré af öllum hlutum í auglýsingu og að hafa tekið mynd af því :-)

2 Comments:

Blogger Finnur said...

Já, ég kannaðist eitthvað við þetta tré líka... :) Það heitir The Lone Cypress.

http://radio-blonde.stanford.edu/dagbok/fh2002_02/id358.htm
(skrollaðu alveg niður á botn síðunnar til að sjá okkar útgáfu) :)

3:51 AM  
Blogger Edda said...

Finnur, við eigum einmitt líka svona "persónulega" mynd með tréð í bakgrunni, með bæði mér og Gumma á myndinni :-)

11:19 AM  

Post a Comment

<< Home