Sunday, September 26, 2004

Haustpylsur með remólaði

Frábær dagur í gær. Fórum í frábært grillpartý sem stóð allan daginn og langt fram á kvöld. Vorum þarna með um 30 öðrum Íslendingum, með íslenskt remólaði og íslenskan steiktan lauk og bjór, vantaði bara SS pylsurnar. Lögðum sem sagt hverfið hennar Nönnu undir okkur. Veðrið gat ekki verið betra, nánast of gott, ef það er hægt. Setti nokkrar myndir hér inn á.

En ég byrjaði nú daginn á því að skella mér í pilates og sé ekki eftir því. Mjög góðar æfingar, ætla að reyna að fara reglulega. Trúi ekki að ég sé búin að búa hér í þessum frekar litla bæ (íbúafjöldinn er einn sjöundi af íbúum Íslands) án þess að finna þennan pilates stað, en betra seint en aldrei ekki satt. Hann er nánast bara hinum megin við götuna, svo það er stutt að fara.

Var líka að byrja með Elísabetu í leikfimi, henni finnst SVO gaman. Erum búnar að fara nokkrum sinnum. Þarna eru nokkur önnur börn, m.a. sæta Mist hennar Nönnu. Þetta er svo örvandi fyrir Elísabetu, hún er að í 45 mínútur og svo lognast hún bara útaf á leiðinni heim alveg búin á því. Hennar uppáhhalds dót er rugguhesturinn, hún sest á hann og ruggar sér eins og brjáluð, ferlega fyndið. Setti nokkrar myndir þaðan inn á.


Friday, September 24, 2004

Slöpp - þreytt - afmæli

Ég var svo ferlega slöpp í gær, með beinverki og allt, dagurinn leið bara í móðu einhvern veginn, en ég var þó ekki með hita . Ég náði samt að skella mér á kaffihús með nokkrum vinkonum. Fórum á þetta fína kaffihús hér í Arlington, Carberry´s, sem rekið er af Íslendingi. Það var með sófa og allt svo okkur leið bara eins og í Friends, fyrir utan börnin sem voru með okkur og að við vorum bara fimm. En við ætlum að reyna að gera þetta að föstum fimmtudags viðburði. Ég hlakka því mikið til næsta fimmtudags, vonandi verð ég mun hressari þá.

Annars vil ég óska systur minni Auði innilega til hamingju með daginn í dag og henni Nínu minni skólapíu innilega til hamingju með daginn í gær, vonandi verður gaman í partýinu hjá þér á laugardaginn.

Ég var að bæta inn nokkrum myndum frá því ég fór með vinkonum mínum út að borða um daginn. Fórum nokkrar góðar saman út á lífið. Þær búa flestar hér á Bostonsvæðinu og nokkrar þeirra með mér í saumó. Byrjuðum á því að hittast heima hjá Brynju sem býr á prima stað í miðbæ Boston og fengum þar heimatilbúið Sangria og meðlæti, allt alveg frábært. Fórum svo á stað í Boston sem heitir Sophia´s, bæði veitingastaður og dansstaður. Byrjuðum á því að fá okkur fínan tapas mat, hef aldrei prófað það áður svo það var mjög gaman, fórum svo á efri hæðirnar í djammið. Það tók því varla að taka myndavélina með því eftir nokkrar myndatökur varð hún batteríslaus :) svona er þetta, get þó birt myndir af okkur að borða.

Ég ætla að skella mér að sofa þar sem klukkan er að ganga eitt, engin furða að ég verði slöpp þegar ég fer svona seint að sofa, fyrir utan að ég þarf að vakna svona 2svar á nóttu með Elísabetu !!! Verð að venja hana af þessu.

Er að fara í fyrsta pilates tímann minn á morgun, hlakka til/ekki alveg að nenna því tilfinning í gangi, hlakka samt meira til en hitt. Um eftirmiðdaginn förum við svo í grillpartý til Nönnu og fjölskyldu þar sem verða fullt af Íslendingum.

Góða nótt, Edda.

Tuesday, September 21, 2004

Myndir

Ég er búin að setja inn nokkrar myndir, ef þið viljið fá aðgang sendið mér bara línu og ég sendi ykkur aðgangsorð.

Sunday, September 19, 2004

Loksins loksins

Hæ hó

Loksins erum við búin að setja upp síðu með einhverjum fréttum af okkur og vonandi myndum í framtíðinni.
Ég er búin að vera að vesenast í þessu í allt kvöld svo nú ætla ég að sofa. Set e-n texta inn á morgun eða kannski myndir, fer eftir hversu vel ég er búin að læra á þetta.
Var nú e-ð að reyna að breyta forritinu, en það situr nú ekki mikið eftir frá því ég tók hvorki meira né minna en heila önn í tölvunarfræðinni í HÍ. En ég hef nú alltaf Gumma minn, þ.e. þegar hann er ekki að læra.

Góða nótt í bili, Edda.