Wednesday, August 13, 2008

Sund og gæsapartý

Gleymdi nokkru hérna áðan.  Stelpurnar fóru á sundnámskeið í lok júlí, voða gaman.  Ýr orðin flugsynd, þarf aðeins að læra að dýfa sér betur en kann meira að segja flugsund, geri aðrir betur fyrir 10 ára, rosalega flott hjá henni.  Elísabet var svo að byrja að læra að synda.  Henni gekk svo vel að það var alveg ótrúlegt.  Barnið vildi ekki setja andlitið í vatnið í sturtunni áður en hún byrjaði en endaði 2ja vikna sundnámskeið á því að hoppa út í laugina og synda (busla) sjálf að bakkanum, ferlega flott hjá henni.  Kennarinn hennar var líka ofsalega ánægð með hana.  Ég á sem sagt 2 litla höfrunga núna :-)  Við erum líka límd hérna við skjáinn yfir Ólympíuleikunum, sérstaklega sundinu, fimleikunum og blakinu.
Ég fór svo síðustu helgina í júlí í gæsapartý sem varði alla helgina.  Við gistum á hóteli í Monterey, sem er rúmlega klst. suð-vestur af okkur.  Það var ofsalega gaman hjá okkur, gaman að upplifa amerískt gæsapartý.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home