Thursday, September 21, 2006

Ágústferð til Santa Barbara

Við stelpurnar fórum með mömmu til Santa Barbara um miðjan ágúst. Við keyrðum niður eftir þjóðvegi 1, sem liggur niður eftir vesturströnd Californiu. Þessi leið er ein sú fallegasta sem ég hef keyrt eftir, ekki í fyrsta skipti sem ég keyri þessa leið og örugglega ekki í síðasta skipti.

Við sem sagt keyrðum niður eftir ströndinni, með nokkrum stoppum á leiðinni. Við gistum í Santa Barbara í nokkrar nætur og nutum þess að slappa þar af. Santa Barbara er frábær bær, mjög afslappaður og skemmtilegur. Við keyrðum líka til Solvang sem er lítill bær rétt hjá Santa Barbara og alltaf talað um hann sem hin danska höfuðborg USA. Mjög skemmtilegur lítill bær með miklum dönskum áhrifum og dönskum vínarbrauðum. Á leiðinni heim ákváðum við að keyra niður til LA því mamma hefur aldrei komið þangað áður, við vorum líka svo nálægt LA. Kíkið á myndirnar hérna til hliðar. Þetta var frábær ferð, afslappandi og skemmtileg.

Monday, September 11, 2006

Skólinn byrjaður

Systurnar voru báðar að byrja í skólunum sínum. Ýr í sama skóla og í fyrra og Elísabet í nýja skólanum sínum. Eins og þið getið ímyndað ykkur þá var hún Elísabet mín MJÖG stolt af sjálfri sér, að vera í skóla eins og stóru krakkarnir. Það er svo fyndið hérna í USA að er ekki bara um að ræða leikskóla eins og á Íslandi heldur er talað um annars vegar "learning based" skóla og hins vegar "play based" skóla. Eins og nöfnin gefa til kynna þá er áherslan á þeim fyrri lögð á að læra og á hinum að leika. Svo nú er Elísabet 2 daga í einum skólanum og 3 daga í viku í hinum. Bandaríkjamenn geta meira að segja gert þessa hluti flókna :-)
Ýr er mjög ánægð að vera komin aftur í skólann sinn og hitta alla krakkana aftur. Þetta er líka svo skemmtilegur skóli sem hún er í.

Flýtt sér í sturtu

Ýr er stundum svo utan við sig, eins og lítill prófessor. Um daginn þá var hún að fara í snögga sturtu og var að flýta sér úr fötunum. Hún henti buxunum af sér á gólfið, sokkum og nærfötum líka, að lokum fór hún úr bolnum og henti honum í klósettið í öllum látunum. Ég veit að baðherbergið okkar er lítið en ekki svona lítið. Þetta var SVO fyndið. Síðan var hoppað í sturtu.

Tuesday, September 05, 2006

Leyniorð

Var að breyta leyniorðinu að myndunum. Sendið mér póst á gmail ef þið viljið aðgang.

Edda.

Leitað að Ariel hafmeyju

Ég, mamma, Ýr og Elísabet fórum um daginn upp til San Francisco niður á Marina. Þetta er niðri við San Francisco Bay, mjög skemmtilegt svæði, ég hef ekki komið þangað áður. Þar eru meðal annars nokkur gömul skip eða eiginlega seglskútur sem hægt er að fara á. Við ákváðum að labba út á bryggjuna og skoða skipin. Um leið og Elísabet rak augun í stóra skipið þá fór hún að kalla á Ariel (hafmeyju). Reyndar var skipið mjög líkt því sem prinsinn var á í teiknimyndinni. Svona voru samræðurnar:

Elísabet: Ariel, Ariel (kallar með MIKLUM amerískum hreim og horfir ofaní sjóinn)
Ég: á hvern ertu að kalla?
Elísabet: Ariel (mikil hneykslun í tóninum á því að mamma viti ekki við hvern hún er að tala)
Ég: er Ariel þarna í sjónum?
Elísabet: jahááá, Ariel, Ariel... (kallar og kallar og kallar)
Ég: hún er kannski bara sofandi
Elísabet: NEI, hún er þarna (mjög ákveðin rödd, og heldur áfram að kalla og kalla)

Undir lokin þá var hún orðin svo reið að Ariel svaraði henni ekki að ég þurfti að halda á henni grátandi í burtu. Ótrúlega fyndið.