Tuesday, August 26, 2008

Skólamyndir

Hér eru nokkrar skólamyndir frá fyrsta skóladeginum hennar Elísabetar.  Hún ætlaði nú ekki alveg að vilja fara inn í kennslustofuna í morgun en það vildi svo heppilega til að ein vinkona hennar af leikskólanum er einmitt með henni í bekk.  Um leið og Elísabet sá hana þá var þetta nú ekkert mál.  Ein myndin er einmitt af Elísabetu og vinkonu hennar, síðan ein af Elísabetu og kennaranum og ein af henni áður en hún fór í skólann.  Það er nefninlega hefð á þessu heimili að taka skólamyndir á fyrsta skóladeginum á hverju ári.  Ég hef m.a. gert það með Ýr frá því hún byrjaði í Kindergarten :-)  Rosa gaman að eiga þessar myndir og sjá breytinguna milli ára.

Sunday, August 24, 2008

Fyrsti skóladagurinn

Ég trúi ekki að minni snúllan mín er að fara að byrja í skólanum á morgun, fyrsti skóladagurinn.  Hún er nefninlega að byrja í Kindergarten.  Ótrúlega líður tíminn hratt.  Við fluttum hingað til USA þegar Ýr var að byrja í Kindergarten , en nú er komið að Elísabetu.  Set inn fyrstu skólamyndina á morgun :-)

Monday, August 18, 2008

Home alone

Ég og Elísabet erum bara einar heima í kvöld, Gummi fór til New York í gær og Ýr er að gista hjá vinkonu sinni í nótt.  Við Elísabet notuðum því tækifærið og fórum út að hjóla eftir kvöldmat, þ.e. hún fór á hjólinu og ég skokkaði með, ótrúlega gott og gaman.

Wednesday, August 13, 2008

Sund og gæsapartý

Gleymdi nokkru hérna áðan.  Stelpurnar fóru á sundnámskeið í lok júlí, voða gaman.  Ýr orðin flugsynd, þarf aðeins að læra að dýfa sér betur en kann meira að segja flugsund, geri aðrir betur fyrir 10 ára, rosalega flott hjá henni.  Elísabet var svo að byrja að læra að synda.  Henni gekk svo vel að það var alveg ótrúlegt.  Barnið vildi ekki setja andlitið í vatnið í sturtunni áður en hún byrjaði en endaði 2ja vikna sundnámskeið á því að hoppa út í laugina og synda (busla) sjálf að bakkanum, ferlega flott hjá henni.  Kennarinn hennar var líka ofsalega ánægð með hana.  Ég á sem sagt 2 litla höfrunga núna :-)  Við erum líka límd hérna við skjáinn yfir Ólympíuleikunum, sérstaklega sundinu, fimleikunum og blakinu.
Ég fór svo síðustu helgina í júlí í gæsapartý sem varði alla helgina.  Við gistum á hóteli í Monterey, sem er rúmlega klst. suð-vestur af okkur.  Það var ofsalega gaman hjá okkur, gaman að upplifa amerískt gæsapartý.

Um daginn og veginn

Tíminn líður allt of hratt, kominn miður ágúst og stelpurnar fara bráðum að byrja aftur í skólanum sínum.  Við erum búin að vera að slaka á og njóta góða veðursins hérna.  Ég kláraði Anatomiu námskeiðið mitt, sem er hluti af Pilates kennslunni minni, þarf núna bara að læra þetta allt utan að og taka prófið mitt :-)  Ýr fór á ballett námskeið sem lauk með mjög skemmtilegri sýningu.  Hún er síðan að fara á leikjanámskeið í næstu viku með vinkonu sinni.  Elísabet fór í 3 vikur á leikskólann sinn, síðan þegar ég spurði hana hvort hún vildi fara í eina viku í viðbót þá sagði hún nei og tilkynnti mér að hún væri BÚIN með þann skóla og vildi komast í nýja skólann sinn :-)  mjög ákveðin (hún er að fara að byrja í "alvöru" skóla núna í lok ágúst).
Við hjóluðum út í búð áðan til að kaupa í matinn, eða þær hjóluðu og ég skokkaði.  Það er ekki langt síðan Elísabet hætti að hjóla með hjálpardekkin svo hún er ennþá pínku lítið völt, ekki mikið samt.  Á leiðinni missti hún aðeins jafnvægið, náði ekki að stoppa sig og endaði inni í rósarunna :-( með skrámur sem náðu niður eftir öðrum handleggnum og öllu lærinu, greyið litla.  Apótekið var þarna rétt hjá okkur svo þangað fórum við og hreinsuðum sárin.
Annars erum við bara búin að hafa það gott og síðan er ferðinni heitið til New York í lok mánaðarins, allir mjög spenntir yfir því.