Saturday, December 20, 2008

Ekki mikill bloggari

Ég er nú búin að vera frekar glötuð í þessu bloggi síðastliðna mánuði.  Er búin að vera of upptekin í Facebook :-)  Set inn myndir hérna í staðinn.  Mikið búið að gerast á þessum tíma, en ég stikkla bara á stóru hér.  Elísabet fékk hvíta beltið í karate, Lilja Ýr tók þátt í frábærri sýningu á Nutcrackernum í einu stærsta leikhúsinu í San Jose, báðar ömmurnar komu til okkar um mánaðarmótin nóv./des, önnur var í 10 daga og mamma er ennþá hjá okkur og verður yfir jól og áramót.  Ég og Ýr fórum í snjóinn í Seattle í vikunni og náðum í lítinn, sætan hvolp.  Kíkið á myndirnar hér til hliðar undir "Nýjar myndir".

0 Comments:

Post a Comment

<< Home