New York, New York
Við erum komin aftur frá New York. Ótrúlega skemmtileg ferð. Þetta er svo skemmtileg borg, alveg frábær. Fyrir þá sem ekki vita þá fórum við í nokkurra daga ferð til NY í síðustu viku og eyddum helginni þar. Gummi fór á undan okkur í vinnuferð og við hittum hann þar.
Fyrsta daginn okkar fórum við í Central Park, röltum um í góða veðrinu og skoðuðum dýragarðinn. Um kvöldið hittum við vini okkar, Ástu og Kjartan og börnin þeirra, Valtý og Elínu Höllu. Borðuðum með þeim og fórum svo á Broadway sýninguna, Mary Poppins. Frábært kvöld, ofsalega skemmtileg sýning og vel gerð.
Gummi tók sér frí daginn eftir og fór með okkur á Public Library, flott bókasafn. Ég var síðan plötuð til að fara á toppinn á Rockefeller Center, sem kallast Top of the Rock. Ég er alveg rosalega lofthrædd og að fara þangað á toppinn var þvílíkt afrek fyrir mig :-) en líka ferlega gaman. Við ætluðum síðan að fara með stelpurnar til Ástu og Kjartans, því þau voru svo sæt að bjóðast til að passa þær meðan við Gummi færum út að borða, þetta var nefninlega afmælisdagurinn hans Gumma. Á leiðinni á lestarstöðina ákvað Elísabet að setja mark sitt á Rockefeller Center og gubbaði þar á gólfið, beint yfir bakið á mér :-) Elsku kerlingin var orðin veik, sennilega vegna sýklalyfjanna sem hún var á og slæmt mataræði. Þar með breyttist kvöldið okkar Gumma aðeins. Seinna um kvöldið þegar Elísabet var orðin aðeins hressari þá skelltum við okkur á grískan veitingastað í Hells Kitchen í smá afmælismat.
Þriðja daginn okkar fórum við með börn Ástu og Kjartans á kaffihús í hverfinu þeirra. Kaffihúsið heitir Alice's Tea Cup og er í anda Lísu í Undralandi ævintýrisins eða bara almennt ævintýralands. Þeir sem vilja geta fengið pixiedust (glimmer) yfir sig áður en haldið er inn :-) Kökurnar og skonsurnar þarna eru meiriháttar, mjög skemmtilegur staður. Næst var stefnan tekin á Natural History Museum, rosalega stórt og flott safn. Við eyddum deginum þar að skoða dýrin, stjörnurnar og fleira og fleira. Okkur var síðan boðið í kvöldmat til Ástu og Kjartans ásamt fleirum vinum þeirra. Til merkis um það hversu lítið land Ísland er þá komumst við að því að kærasta eins vinar þeirra var að passa Elísabetu á Íslandi í sumar þegar hún fór á leikskóla þar :-) Annars áttum við mjög góða kvöldstund með þeim öllum og sátum þar fram á nótt.
Síðasta daginn okkar tókum við bara rólega enda vorum við ansi þreytt frá deginum áður. Röltum aðeins um og skoðuðum og kíktum í risa nammibúð, Dyllan's Candybar, sem er á 3 hæðum. Fengum okkur síðan ítalskan mat í hverfinu. Flugið var svo snemma daginn eftir en gekk samt ágætlega. Bíllinn beið eftir okkur á vellinum en þegar þangað var komið þá var rafgeymirinn dauður í bílnum, ég hafði sem sagt gleymt ljósi á inni í bílnum :-) Við vorum svo heppin að hitta mann sem gaf okkur start og við gátum lokið ferðinni okkar.
Ég bjóst nú ekki við því að verða meira hrifin af New York en ég varð það svo sannarlega. Ef þið hafið ekki komið þangað endilega gerið það. Kíkið á myndir úr ferðinni hér til hliðar.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home