Skólamyndir
Hér eru nokkrar skólamyndir frá fyrsta skóladeginum hennar Elísabetar. Hún ætlaði nú ekki alveg að vilja fara inn í kennslustofuna í morgun en það vildi svo heppilega til að ein vinkona hennar af leikskólanum er einmitt með henni í bekk. Um leið og Elísabet sá hana þá var þetta nú ekkert mál. Ein myndin er einmitt af Elísabetu og vinkonu hennar, síðan ein af Elísabetu og kennaranum og ein af henni áður en hún fór í skólann. Það er nefninlega hefð á þessu heimili að taka skólamyndir á fyrsta skóladeginum á hverju ári. Ég hef m.a. gert það með Ýr frá því hún byrjaði í Kindergarten :-) Rosa gaman að eiga þessar myndir og sjá breytinguna milli ára.





1 Comments:
Vá, en sæt og fín skólastelpa!! Til hamingju með þennan stóra áfanga elsku Elísabet. Kristján Ingi er orðinn mjög spenntur að byrja í sínum skóla - síðasta dagur á leikskólanum á morgunn. Þið eruð nú aldeilis orðnir stórir krakkar!!
Knús og kossar frá Englandi,
Inga Rósa og fj.
Post a Comment
<< Home