Wednesday, November 14, 2007

Frábær Halloween dagur

Ég verð nú að segja að þetta er eitt skemmtilegasta tímabil ársins að mínu mati. Byrjar með pumpkinskurði, síðan Halloween, síðan kemur afmælið mitt og Elísabetar, Thanksgiving og svo jólin, allt á bara 2 mán. Halloween núna í ár var mjög skemmtileg. Um morguninn fórum við í skólann hennar Ýrar þar sem allir krakkarnir gengu í skrúðgöngu um skólakampusinn í búningunum sínum, síðan var smá partý fyrir hvern árgang. Um eftirmiðdaginn fórum við til vina okkar sem héldu risa Halloween partý. Þegar tími var svo til að fara að betla nammi í trick or treat þá fór allur krakkaskarinn út saman og labbaði hús úr húsi. Við fórum nokkur fullorðin með því einhver varð að hafa auga með þessum grísum. Síðan héldum við aftur heim til vina okkar og krakkarnir tróðu smá meira nammi í sig. Í ár vorum við öll fjölskyldan í búningum sem gerði þetta ennþá skemmtilegra. Ýr var Hermione, Elísabet fiðrildi, Gummi sjóræningi og ég vond norn. Ég held að Elísabet hafi meira að segja verið smá hrædd við mig :-)
Set inn nokkrar myndir hér til hliðar.

Wednesday, November 07, 2007

Skólapartý og jarðskjálfti

Daginn fyrir Halloween, 30. okt., var kvöldskemmtun í leikskólanum hennar Elísabetar í tilefni af því að Halloween var daginn eftir. Þetta var voða skemmtilegt, allir krakkarnir í Halloween búningunum sínum. Það var sýnt leikrit, borðaðar kökur og sungið, mikið fjör. Ég set inn myndir hérna til hliðar.
Þegar við vorum á leiðinni heim, vorum að labba út úr skólabyggingunni þá kom jarðskjálfti, 5.6 á Richter. Þetta var rosa skrýtið, hef aldrei fundið fyrir skjálfta svona sterkt áður. Ég bókstaflega sá húsið sem við vorum í liðasta fram og til baka. Sem betur fer skemmdist ekkert í skólanum og ekkert heima hjá okkur. En við heyrðum sögur af fólki í hverfinu okkar sem varð fyrir hinu og þessu tjóni, ekkert alvarlegt samt sem betur fer.
Þetta varð til þess að við Gummi ákváðum að fara all hressilega yfir jarðskjálftaplanið okkar eða emergency planið okkar. Varabirgðirnar okkar og setja niður plan ef e-ð kemur fyrir. Öllum hérna á svæðinu er ráðlagt að gera þetta, sérstaklega þegar svona mikil jarðsjálftahætta er hérna.
En þetta var samt mjög skemmtilegt kvöld og við fórum heim með tvær stelpur í sykurvímu.

Sunday, November 04, 2007

Pumpkin skurður

Fórum á pumpkin patch með góðum vinum um daginn, ég, Ýr og Elísabet. Fundum nokkur góð pumpkin og tókum þau með heim. Fórum heim til vina okkar í fjöllunum til að skera þau út og bökuðum í leiðinni skemmtilegar Halloween kökur. Ofsa gaman í tilefni af því að Halloween var bara viku seinna.