Tuesday, May 27, 2008

Ferð til Santa Barbara

Síðasta helgin var löng helgi sem kallast Memorial Day Weekend (frí á mánudeginum).  Við skelltum okkur yfir helgina til Santa Barbara og hittum Hildi og Felipe.  Það var voða gaman að sjá þau.  Löbbuðum aðeins um Santa Barbara og fórum líka til Solvang.

Friday, May 23, 2008

Skógareldar hjá okkur

Það eru skógareldar hér upp í fjöllunum fyrir ofan okkur, mestu skógareldar sem hafa verið í þessum fjöllum.  Margir búnir að missa heimili sín, alveg rosalegt.  Svo núna er loftið hérna úti grátt og mikil brunalykt í loftinu.  Ýtið hérna á til að sjá fréttir af þessu.

Thursday, May 22, 2008

Íþróttastelpan mín

Það var mikið að gera hjá Lilju Ýr um helgina.  Hún stóð í ströngu í síðustu viku við það að æfa fyrir ballettsýninguna sína sem var síðastliðinn föstudagsmorgun og föstudagskvöld.  Rosa skemmtileg sýning þar sem hún lék píanó og hest :-)  Hér er hún með góðum vinum sem komu að horfa á hana.
 
Hún þurfti síðan að mæta klukkan hálf sjö næsta morgun til að hlaupa í 5 Km maraþoni sem hún og nokkrar aðrar skólasystur hennar voru búnar æfa fyrir síðustu 12 vikurnar.  Sem betur fer var þetta svona snemma um morguninn því hitinn var orðinn óbærilegur klukkan 10 um morguninn.  Ýr stóð sig ótrúlega vel.  Það er svo fyndið hvað henni hefur farið fram í íþróttum.  Þetta er stelpa sem aldrei hefur haft NEINN áhuga á íþróttum.  Núna í ár hefur leikfimiskennarinn/sundkennarinn hennar komið til mín til að segja mér hversu mikið henni hefur farið fram í sundi, hún vildi endilega taka þátt í þessu maraþoni og hún er að fara á fótboltanámskeið á Íslandi í sumar. 
Á laugardagskvöldinu fór hún síðan í afmælispartý til vinkonu sinnar þar sem þeim var boðið að gista yfir nóttina og synda allt kvöldið.  Mín var mjög uppgefin á sunnudeginum eins og við var að búast.  Hér er hún eftir að hún kom í mark með vinkonum sínum.
  

Wednesday, May 14, 2008

Hið fræga tré

Ég var að horfa á sjónvarpið um daginn, eins og svo oft áður.  Þegar auglýsingarnar komu á skjáinn, þá allt í einu tók ég eftir tré í einni auglýsingunni sem ég þekkti, skrýtin tilfinning.  Ég sagði þá við Gumma,"Hey, ég þekki þetta tré".  Hann hélt ég væri nú e-ð biluð.  En einhvern vegin var það ekki alveg á réttum stað í auglýsingunni.  Síðan fór það að færast frá einum stað til annars.  Þá fattaði ég allt í einu að ég hafði tekið myndir af þessu tré.  Í lok auglýsingarinnar þá endaði tréð á réttum stað og þá áttaði ég mig á því hvar ég hafði séð það, á Pebble Beach, bara aðeins búið að photoshoppa það.

Ótrúlega fyndin tilfinning að þekkja tré af öllum hlutum í auglýsingu og að hafa tekið mynd af því :-)

Hiti og mæðradagur

Úffff,  það er að koma rosa hitabylgja hérna hjá okkur næstu daga.  Það er frekar óvenjulegt miðað við árstíma.  Hitinn á að fara upp í 40 stig.  Það er verið að vara fólk við hitanum meira að segja.  Biðja fólk að keyra minna, grilla minna, vera inni og drekka mikið vatn!!!  Það verður líka mikið um heita vinda sem eykur hættuna á bruna.  Ég mun sennilega eyða miklum hluta af þessum tíma innandyra þar sem hún Elísabet mín er veik, með einmitt 40 stiga hita.

Annars var helgin mjög ánægjuleg.  Fórum í ofsalega skemmtilegt matarboð á laugardeginum hjá vinum okkar.  Á sunnudeginum var  svo mæðradagurinn fyrir þá sem ekki vita.  Ég var vakin upp með morgunmat í rúmið, heimatilbúnum (eða skólatilbúnum) kortum, föndri og kossum.  Gæti nú alveg vanist þessu á hverjum degi :-)  Þetta var ofsalega notarlegt.  Allan daginn var svo Elísabet alltaf að kyssa mig og knúsa, því að hennar sögn var ég besta mamman hennar (ekki það að hún eigi einhverjar fleiri mömmur :-)