Tuesday, October 23, 2007

Prinsessuferð

Í tilefni af því að litla stelpan mín er að verða 4 ára þá fórum við mæðgur með fjórum vinkonum mínum og dætrum þeirra, sem allar eru líka að verða 4 ára og mjög góðar vinkonur Elísabetar, til Disneylands. Fórum þangað í eina nótt og einn dag. Hittum fullt af prinsessum og meira að segja prinsa líka. Elísabet var alveg jafn uppveðruð af prinsunum eins og prinsessunum, spjallaði mikið við þau öll :-) Við lögðum af stað eldsnemma á fimmtudagsmorgni, tókum flug niður til LA. Eyddum öllum deginum í Disneylandi í tækjum, prinsessuleit og að hafa gaman. Eftir að hafa horft á kvöld skrúðgönguna þá fórum við á Disneyhótelið okkar og héldum svo aftur heim daginn eftir, 5 litlar prinsessur og mömmur þeirra.

Þvílík ævintýraferð, rosalega gaman.

Monday, October 01, 2007

Body worlds og afmælispartý

Frábær helgi að baki. Fór á föstudeginum út að borða með vinkonum mínum í tilefni afmælis einnar þeirrar. Þvílíkt fjör. Fórum á frábæran grískan veitingastað niðri í bæ.
Á laugardeginum fórum við Gummi og stelpurnar á sýningu um mannslíkamann sem sýnd var í Tech Museum í San Jose. Þessi sýning var með alvöru mannslíkömum sem fólk hafði gefið eftir að það lést, kallast Body worlds. Meiriháttar sýning. Þarna var hægt að sjá lungu úr reykingamönnum, hjarta, beinagrindur og fleira. Þetta hljómar hræðilega en er í rauninni ótrúlega fræðandi og flott að sjá (skrýtið að segja þetta :-)
Á sunnudeginum vorum við svo með afmælispartý fyrir Ýr mína. Ég veit, hún átti afmæli í júlí, en þar sem við vorum á Íslandi í sumar þá ákváðum við að leyfa henni að halda partý fyrir vinkonur sínar. Við héldum partýið á stað með RISA stórum trampólínum, Sky High Sports. Þarna var hoppað og skoppað, borðað pizzu og hestaköku :-)
Á laugardagskvöldinu náðum við Gummi að troða einhverstaðar inn bíói og út að borða bara við tvö.

Sem sagt, mjög góð helgi.