Monday, November 27, 2006

Thanksgiving helgin

Það var Thanksgiving á fimmtudaginn síðasta. Mér finnst þetta farið að vera stór hluti af jólunum, eða þá að jólin byrja þá. Við elduðum frábæran mat með vinum okkar Arnari, Sólveigu og börnum. Að sjálfsögðu kalkún og allt tilheyrandi. Hittumst á hádegi og elduðum allan daginn, hlustuðum á jólatónlist og krakkarnir horfðu á jólateiknimyndir.

Á laugardeginum var okkur boðið í jólaskauta party. Vinafólk okkar er alltaf með jólapartý á hverju ári og halda það á skautstað í Palo Alto. Þetta er að hluta til inni-skauta staður og að hluta til úti-skauta staður. Mjög skrýtið að skauta úti í sólinni. Jólalögin voru spiluð og öðru hvoru spreyjað gervisnjó yfir allt, mjög amerískt og skemmtilegt.

Ýr er orðin þvílík skautadrottning, mér til mikillar gleði þar sem mér finnst SVO gaman á skautum. Þetta var í fyrsta skiptið sem Elísabet fór á skauta og ég vissi ekki alveg við hverju átti að búast. Hún var svo spennt að hún talaði ekki um annað allan morguninn (veit samt ekki alveg hvort hún vissi hvað skautar voru). Þegar við svo komum á svellið þá hélt ég í hendurnar hennar báðar og hélt henni nánast uppi. Undir lokin þá var hún farin að draga mig áfram og ég þurfi bara að halda í aðra hendina hennar. Ferlega dugleg. Ég held að ef við förum fljótlega aftur þá verði þetta komið hjá henni. Það verður gaman að sjá hvernig gengur þegar við förum á skíði uppi í Tahoe í janúar. Fyrsta skiptið hjá bæði Ýr og Elísabetu, spennandi. Vonandi gengur vel því mér finnst SVO gaman á skíðum, jafnvel meira en að fara á skauta.

Á sunnudeginum fórum við svo að kaupa jólatré, settum það upp og ætlum að skreyta það í dag. Nú eru örugglega sumir mjög hissa á okkur að byrja jólin svona snemma en svona er þetta bara hér í USA, fólk komið með jólakrautið út og jólatrén inni í stofu. Enda eru jólin líka búin hérna nánast fyrir gamlaárskvöld, svo ef tréð er ekki komið út á götu 1. eða 2.jan. þá verður það ekki tekið.

Þegar við fórum að kaupa tréð í gær þá fannst Elísabetu þetta voða skrýtið. Ég og Ýr völdum tréð og á meðan mennirnir voru að pakka því saman þá var Elísabet bara eitt stórt spurningarmerki, hún greinilega mundi ekkert eftir jólatrénu frá því í fyrra.

Hún spurði hvort við færum með jólatréð til Íslands. Ég sagði nei, en við ætlum að setja það inn í stofu og skreyta það. Þá kom þessi furðulostni hneykslunar svipur á hana. Henni fannst mamma sín greinilega vera búin að tapa sér, að ætla að setja tré inn í stofu hjá okkur og skreyta það.

Við áttum sem sagt yndislega 4 daga helgi, þar sem allir voru í fríi aldrei þessu vant.

Tuesday, November 21, 2006

Á ströndina í nóvember

Það var óvenju gott veður hjá okkur um síðustu helgi, um 20 stiga hiti, svo við ákváðum að fara á ströndina. Fórum á nýja strönd sem er hérna rétt hinu megin við fjöllin, 20 mín. í burtu. Rétt hjá ströndinni er lítill dalur þar sem fiðrildi búa. Við löbbuðum inn í dalinn og þar var allt krökkt af fiðrildum, risa stór og falleg. Þegar þau svo sofa þá hanga þau á hálf berum trjágreinum og hanga hvert á öðru. Ferlega skemmtilegt að sjá þetta. Eftir að við skoðuðum þetta fórum við niður á ströndina með nesti og nýja skó og nutum þess að sitja og leika í sandinum. Áður en við fórum heim þá skoðuðum við tide pools sem voru þarna á ströndinni (veit ekki hvað það heitir á ísl.) Ef einhver veit ekki hvað "tide pools" eru þá er það þegar kemur fjara og sjór verður eftir í holum í klettum. Í þessum pollum er hægt að finna alls konar sjávardýr. Við sáum meðal annars krossfiska, kuðunga, snigla, sjávarblóm og fleiri sjávardýr.

Það var frekar skrýtið að vera á ströndinni þegar það var allt á kafi í snjó á Íslandi. Ég fékk nefninlega myndir af snjónum á Íslandi frá vinkonu minni.

Thursday, November 02, 2006

Trick or Treat

Halloween dagur var mjög "busy" dagur hjá okkur, en líka mjög skemmtilegur. Greyið Gummi gat ekki notið hans með okkur þar sem hann þurfti að vinna fram á kvöld. En þetta er nú samt einu sinni dagur fyrir krakkana :-)
Hann hófst á því að Ýr fór í búningnum sínum í skólann. Núna er hún sem sagt vaxin upp úr því að vera prinsessa og svol. er komin í það að vera meiri pæja. Í árákvað hún að vera norn, eða einhvers konar skóla norn!!! Sjáið bara myndirnar hér til hliðar. Ég setti á hana svar-rauðan varalit og lakkaði neglurnar hennar svartar. Elísabet fór í sinn skóla og ég og Ýr upp í hennar, því ég var að hjálpa til við partý sem 3. og 4. bekkirnir voru með, nammi, leikir og skrúðganga um skólalóðina með hinum bekkjunum, ferlega gaman. Allir voru í búningum, sjáið myndirnar til hliðar.
Elísabet fékk að vera prinsessa og fékk andlitsmálningu á leikskólanum sínum.
Eftir skóla fór Elísabet í fimleikana sína og Ýr í jazzballettinn sinn. Ýr var með smá danssýningu þar sem dansað var við lagið í Gost busters, mjög tilheyrandi.
Eftir það brunuðum við mæðgurnar heim til að fara aftur í búningana. Þegar við vorum tilbúnar þá var klukkan að verða 6, svo við hentumst í bílinn og fórum í partý hjá vinkonu Ýrar. Þar var drukkið og borðað og spjallað.
Ég gleymdi að minnast á það að ég var svört kisa þetta kvöldið, fékk mér skott og eyru og klæddi mig í svört föt. Í partýinu þá hitti ég lítinn 3ja ára aðdáanda. Hann elskar kisur svo hann ákvað að halda ýmist í puttann á mér eða skottið mitt mest allt kvöldið, ótrúlega sætt.
Klukkan 7 var svo kominn tími á að fara í "trick or treat". Krakkarnir tóku pokana sína og allir fóru að labba á milli húsann í hverfinu og safna nammi í pokana sína. Ýr hljóp á undan með nokkrum vinkonum sínum og ég og Elísabet löbbuðum um með vinkonu hennar (líka 3ja ára) og foreldrum hennar. Þetta var mjög arðbær ferð því þær systur fengu ótrúlega mikið nammi.

Þetta var mjög skemmtilegur dagur, gaman að sjá alla þessa búninga.